153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[18:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég er á svipuðum nótum og hv. þm. Logi Einarsson hérna áðan. Ég hef smá áhyggjur af kerfinu á bak við. Það að hafa frelsi til að njóta lífsins á efri árum er mjög mikilvægur réttur. Vegna hækkandi lífaldurs hefur verið ákveðinn hvati hjá stjórnmálamönnum, þeim sem reyna að bera ábyrgð á ríkisfjármálunum, að hækka þennan lífeyristökurétt, árafjöldann áður en fólk byrjar að taka lífeyri, einfaldlega af því að það er mjög dýrt að standa undir kostnaði af því að þjóðin sé að eldast. Það var ekki búist við, í þeim forsendum sem voru gefnar fyrir lífeyrissjóðakerfinu, svona mikilli hækkun á lífaldri þannig að lífeyrissjóðakerfið er dálítið að erfiða, það er undir álagi eins og er og að vissu leyti hefur maður áhyggjur af svona breytingum, að öfugt við franska stílinn, þar sem er bara verið að keyra upp aldurinn, sé hérna verið að læðupokast aðeins í þá átt að fólk þurfi í rauninni að vinna lengur af því að það er verið að skerða lífeyrisréttindi í rauninni út af lengri lífaldri. Það hefur gerst hjá lífeyrissjóðum núna að undanförnu og meira að segja þannig að þau sem eru yngri núna munu fá minni réttindi síðar en fólk sem er eldra, þó að það sé ekki enn þá komið á lífeyristökualdurinn. Það er verið að mismuna þarna aðeins eftir aldri. Þetta mun leiða til þess að fólk hafi í rauninni ekki val um það að vinna lengur heldur verði einfaldlega að gera það af því að lífeyririnn mun ekki standa undir framfærslu þegar það kemst loksins á lífeyristökualdur. Við þurfum að tala um þetta á þennan heiðarlega hátt, opinskáan hátt, að þetta má ekki virka svona.

Það er mjög eðlilegt að veita fólki frelsi til að halda áfram að vinna. En það má ekki gerast á sama tíma að við gröfum undan lífeyrissjóðakerfinu eða það grafi undan sjálfu sér á þann hátt að þó að við höldum núverandi árafjölda, 65 ára aldri eða 67 ára, miðað við þau mörk sem eru núna, þá hverfi réttindin smám saman og þegar ungu kynslóðirnar núna verða orðnar 67 ára þá verði réttindin í rauninni engin og de facto þannig að þau verði í rauninni að vinna lengur án þess að við höfum sett lífeyristökualdurinn eitthvað hærra. Staðan sé bara þannig. Það er hættan sem við þurfum að horfast í augu við þegar við byrjum að stíga svona skref því að við sjáum að lífeyrissjóðir eru að taka þessar ákvarðanir um skertan lífeyri, minni réttindi. Á sama tíma erum við að gefa meira svigrúm til að vinna lengur og að lokum verður það ekki val fyrir fólk sem hefur ekki haft það miklar tekjur yfir ævina. Þá verður mismunun á grundvelli ævitekna, þær ráða því hvort fólk fer á lífeyri við 67 ára aldur eða ekki.

Mér finnst það áhugavert líka með tilliti til þess að þetta er vegna heilbrigðisstarfsmanna. Vegna þess að það er ákveðin krísa í mönnun heilbrigðisstofnana þá verður að grípa til þessa ráðs. Þetta er algjört örþrifaráð. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsti því að það að kjarasamningurinn núna hafi verið samþykktur með bara tveggja atkvæða mun, þrátt fyrir að þetta væri stuttur samningur, gilti bara í eitt ár, væri rauða spjaldið fyrir stjórnvöld. Það væri stórt viðvörunarmerki eftir tvo gerðardóma um kjarasamningana þar á undan og þrátt fyrir ástandið eins og það er núna. Þrátt fyrir að þetta sé bara skammtímasamningur þá er það mjög stór viðvörun að sjá að það munaði þetta litlu að samningurinn yrði felldur. Þetta er einhvern veginn enn einn andardrátturinn sem hjúkrunarfræðingar og heilbrigðisstarfsmenn virðast vera að taka, ákveðin þolinmæði fyrir ástandinu til að halda heilbrigðiskerfinu gangandi í eitt ár í viðbót.

Ég held að það sé síðasti séns, þetta eina ár. Að þessu eina ári loknu verður að vera komin lausn, eitthvað sem fólk sér að muni redda málunum, létta álaginu, gefa fólki réttlætingu fyrir því að starf í þessum geira sé ævistarf, mögulegt ævistarf, eitthvað sem réttlætir það að fara í þetta langa og erfiða nám og það skili sér á þeim vettvangi en ekki í flugfreyjustarfi eða einhverju slíku. Þegar maður spyr lækna hvað þurfi til þess að leysa málið þá segja þeir: Tvöfaldið launin. Þeir hafa talað við hjúkrunarfræðingana og lækna, læknarnir eru svo sem með ágætissamning, sjúkraliðana líka. Tvöfaldið launin, þá munu þeir koma aftur. Það er líka hvati að sjálfsögðu því að aðstæðurnar eru slæmar. Aðstæðurnar eru það slæmar að fólk er ekki að taka 100% starf á Landspítalanum, það tekur yfirleitt 80% starf eða minna jafnvel. Verkefnið um betri vaktavinnutíma átti að laga þetta, átti að hjálpa fólki við að vera í hærra starfshlutfalli þannig að það væri minna um útköll og þess háttar. En það er ekki að ganga, það er ekki að virka.

Úrræðin sem við höfum séð sem eiga að skríða í áttina að því að leysa mönnunarvandann í heilbrigðiskerfinu hafa ekki skilað sínu, líklega af því að þau eru of lítil skref. Einhvern veginn átta stjórnvöld sig ekki á því hversu stór skref þarf að stíga til að koma til móts við vandann og ég veit ekki hvað þarf til þess að fólk átti sig á því. Ég átta mig á því að þetta er líka erfitt af því að það er mjög flókið að segja bara: Laun hjúkrunarfræðinga hjá hinu opinbera tvöfaldast, eða á Landspítalanum eða eitthvað svoleiðis, sérstakar álagsgreiðslur eða eitthvað því um líkt. Hjúkrunarfræðingar starfa víða annars staðar, í einkageiranum sem hjúkrunarfræðingar, og það hefur tvímælalaust áhrif. Það er ákveðin samkeppni um hjúkrunarfræðinga á milli geira til að sinna þeim störfum og það yrði hrikalegt fyrir dvalarheimili eða elliheimili og þess háttar ef sú kjarabót myndi ekki skila sér þangað, kjarabót sem virðist vera þörf á til að fólk haldist í starfsstéttinni. En eitthvað þarf að gera.

Mér finnst þetta bera vott um að vera örþrifaráð, að reyna að fá þarna fimm ár í viðbót frá þeim sem eiga að vera löngu komin á lífeyri og farin að njóta eftirlaunaáranna, bestu áranna. Ég veit ekki hverjum er greiði gerður með því að senda fólk inn í núverandi álag þegar allt kemur til alls.

Að því sögðu segi ég að sjálfsögðu, eins og hv. þm. Logi Einarsson sagði hérna áðan: Þetta snýst um val. Ég er alveg hjartanlega fylgjandi því að það sé val þarna en það má ekki vera þvingað val.