153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[18:16]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði bara rétt að koma hér í lokin og þakka umræðuna um það frumvarp sem við ræðum hér, um hækkun hámarksaldurs. Ég þakka líka fjölmargar góðar ábendingar sem ég er ekki í vafa um að munu koma til umfjöllunar í hv. velferðarnefnd. Ég staldra við orð síðasta ræðumanns, hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar. Þvingað val — þannig orðaði hv. þingmaður það eftir að hafa farið yfir mjög athyglisverðar ábendingar um það hvaða þýðingu það hefur fyrir lífeyriskerfið að við lifum lengur og erum hressari lengur, það veldur auknu álagi á lífeyriskerfið, og hvernig við mætum þeim áskorunum. En varðandi þetta þvingaða val ætla ég að ítreka það hér að þetta er einmitt val. Þegar við erum búin að ná þessum virðulega aldri og okkur líður vel, erum hress og höfum gaman af því að vinna við það fag sem við höfum menntað okkur til eða þá vinnu sem við höfum valið okkur, ætla ég að vona að við höfum líka þann þroska til að bera að velja þá út frá því en ekki að um sé að ræða einhverja óræða samfélagslega skyldu. Ég held að við höfum öll skilað okkar til samfélagsins, a.m.k. flest hver, þegar við erum komin á þennan aldur.

Ég vildi bara segja að mér fannst þetta mjög áhugaverð umræða. Lífeyriskerfið var svolítið rætt og hér er ekkert verið að hrófla við því eins og það er samkvæmt lögum í dag, þ.e. þessi skyldutrygging lífeyrisréttinda sem fellur niður við 70 ára aldur. Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir þeim greiðslum heilbrigðisstarfsmanna en það er rétt að taka það fram að á sama tíma og hið skyldubundna lífeyrisiðgjald launagreiðanda fellur niður getum við frestað lífeyristöku lengur en til sjötugs. Við erum því ekki að hrófla við neinu í lífeyriskerfinu þarna en væntanlega þarf að taka almennt tillit til þess.

Ég vil líka svara hv. þm. Loga Einarssyni hvað það varðar að það er mjög mikilvægt að þeir sem starfa úti á landi hafi einhvern til að leysa sig af þannig að þeir fái sín frí og hafi líka stuðning í starfi, það er æskilegt. Eins og þetta hefur byggst upp þá er það svona óformlegt; það myndast kollegasamband þar sem menn skipuleggja sig og fá einhvern til að leysa sig af o.s.frv. En ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að við ættum að huga að því að formgera þetta betur og tryggja að það sé kerfisbundið.

Tæknin mun síðan hjálpa okkur að einhverju marki. Við erum til að mynda að skoða núna tillögur frá viðbragðsteymi í bráðaþjónustu um fjarskiptalækni. Þá erum við raunverulega að formgera það óformlega samband sem er í dag þegar fólk er við bráðaaðstæður einhvers staðar uppi á jökli eða uppi á fjalli, og eitthvert slys hefur orðið, og það hringir í einhvern sem hefur þekkingu á því sem upp hefur komið og fær stuðning við þær aðstæður. Við getum formgert ýmislegt og gert betur að þessu leyti. En við höfum mjög öflugt fólk sem hefur lært inn á kerfið og lært að vinna með það og hefur í raun búið það svolítið til með okkur; mér fannst það athyglisverð athugasemd hér. Hv. þm. Guðný Birna Guðmundsdóttir kom með mjög gott innlegg sem styður kannski við það sem er markmiðið með frumvarpinu; það er ekki að leysa allan mönnunarvandann heldur að styðja við þetta kerfi okkar og stuðla mögulega að betri mönnun. Um leið verðum við að gera fjölmargt annað og ég held að allir hv. þingmenn séu sammála því.

Ég vil bara að lokum, hæstv. forseti, þakka þessa umræðu. Ég er ekki í vafa um það, út frá þeirri jákvæðni sem ég skynja hér fyrir þessari breytingu, að málið fái góðan framgang í hv. velferðarnefnd.