153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[18:22]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra laga um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð. Með frumvarpi þessu er lagt til að sett verði heildstæð lög um rekstur og uppbyggingu flugvalla auk rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu sem ríkinu ber að sjá til að sé til staðar. Frumvarpið mun því fela í sér einföldun regluverks og er ætlað að draga fram verkefni stjórnvalda á þessu sviði með skýrari hætti en áður hefur verið gert.

Verði frumvarpið að lögum falla úr gildi á sama tíma þrenn lög sem nú gilda á þessu sviði. Í fyrsta lagi lög um stofnun hlutafélags um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands, nr. 102/2006, í öðru lagi lög um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar o.fl., nr. 76/2008, og í þriðja lagi lög um samruna opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar, nr. 153/2009. Þessi þrenn lög hafa saman að geyma ýmis ákvæði um stofnun umræddra félaga, hlutverk þeirra og innra starf og liggja ákvæði þeirra í dag til grundvallar þessari starfsemi ríkisins.

Virðulegi forseti. Ég mun nú gera grein fyrir meginefni frumvarpsins. Skipta má efni frumvarpsins í fimm hluta. Í fyrsta lagi eru skilgreind þau verkefni við rekstur og uppbyggingu flugvalla og rekstrarstjórnun flugumferðar eða flugleiðsöguþjónustu sem stjórnvöldum ber að sjá til að sinnt sé af hálfu ríkisins sem og þau meginmarkmið sem stefnt skal að við framkvæmd þeirra verkefna. Þessi verkefni eru að hluta til skilgreind sem verkefni Isavia ohf. í gildandi lögum en skýr markmiðssetning með tilvísun í stefnuáherslur stjórnvalda er nýmæli í lögum.

Í öðru lagi er kveðið á um að Isavia skuli sinna umræddum verkefnum fyrir hönd ríkisins á grundvelli þjónustusamninga með svipuðum hætti og undanfarin ár.

Í þriðja lagi eru tekin upp sambærileg ákvæði og í gildandi lögum sem snúa sérstaklega að starfsemi Keflavíkurflugvallar, bæði gagnvart öryggissvæðum á vellinum sem og þeim hefðbundnu verkefnum sveitarfélaga sem rekstraraðilinn fer með innan flugvallarsvæðisins.

Í fjórða lagi eru, eins og áður var nefnt, felld úr gildi eldri lög á þessu sviði, samanber það sem áður var rakið.

Að lokum er í fimmta lagi lagt til að tekið verði upp varaflugvallargjald.

Frumvarpið leggur til breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, þar sem kveðið er á um innheimtu 200 kr. varaflugvallargjalds á hvern flugfarþega. Gjaldið verði lagt á komu- og brottfararfarþega í innanlands- og millilandaflugi, þó með þeirri undantekningu að farþegar sem millilenda greiði aðeins vegna brottfarar frá landinu, sem sagt aðeins einu sinni. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins verði á bilinu 1,2–1,6 milljarðar og fer það eftir þróun farþegafjölda. Mun Isavia ohf. innheimta gjaldið af flugrekendum og skila í ríkissjóð.

Mikilvægi þess að byggja upp trausta og örugga varaflugvelli á landinu ætti flestum að vera ljóst. Fyrir liggur að Egilsstaðaflugvöllur og flugvöllurinn á Akureyri gegna mikilvægu öryggishlutverki í millilandaflugi og það sama gildir auðvitað um Reykjavíkurflugvöll. Til að þeir geti sinnt því hlutverki með fullnægjandi hætti er nauðsynlegt að ráðast í uppbyggingu á umræddum flugvöllum. Varaflugvallargjaldinu er ætlað að standa straum af slíkri uppbyggingu. Þá er einnig rétt að líta til þess að með traustum varaflugvöllum verður flugrekendum gert mögulegt að fljúga til landsins með minna magn af eldsneyti sem aftur dregur úr losun vegna flugs. Umhverfissjónarmið mæla því einnig með uppbyggingu varaflugvalla.

Í frumvarpinu er ekki að finna ákvæði um skipulag eða innra starf Isavia ohf. Litið er svo á að slík ákvæði eigi ekki heima í lögum um verkefni ríkisins á þessu sviði. Félagið starfar á grundvelli þess ramma sem markaður er í lögum um opinber fjármál og í hlutafélagalögum sem og í eigendastefnu og samþykktum félagsins. Sé þörf á sérstökum lagaákvæðum um starfsemi félagsins ættu þau heima í sérlögum þar um. Eftir sem áður verður hins vegar gert ráð fyrir því að Isavia ohf. og dótturfélög þess sinni að meginstefnu til verkefnum ríkisins á þessu sviði á grundvelli þjónustusamninga við ráðuneytið, eins og áður segir.

Víðtækt samráð var haft við gerð frumvarpsins við hagsmunaaðila, fjármála- og efnahagsráðuneytið, utanríkisráðuneytið, Samgöngustofu, Isavia og Skattinn. Talið er að skýrt og uppfært lagaumhverfi á þessu sviði muni styðja við hagkvæman rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu og stuðla þannig að framgangi stefnu stjórnvalda á þessu sviði.

Ég hef nú farið yfir meginefni frumvarpsins. Verði það að lögum er gert ráð fyrir auknum tekjum og þar af leiðandi jákvæðum áhrifum á afkomu ríkissjóðs.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar sem og 2. umr.