uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Forseti. Einföldun og skýrleiki eru meginmarkmið þessa frumvarps og það er einmitt gott að draga þræði úr ólíkum lögum saman á einn stað þannig að við sjáum betur um hvað málið snýst. Þess vegna langar mig að spyrja um 5. gr. frumvarpsins sem fjallar um alþjóðlegar skuldbindingar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar er vísað í ýmislegt sem ríkið hefur skuldbundið sig til gagnvart NATO og Bandaríkjunum og fleirum, hvort það þurfi ekki að fá þær upplýsingar á einn stað, kveða á um einhvers konar skrá yfir þessa alþjóðlegu samninga eins og er í 1. mgr. greinarinnar gert t.d. með eignaskrá Atlantshafsbandalagsins. Þar er skrá til staðar sem hægt er að vísa í. Ég nefni þetta vegna þess að t.d. er mikil skuld uppi í utanríkisráðuneyti þegar kemur að því að birta alþjóðasamninga. Þeir bíða oft árum saman og jafnvel í rúman áratug eftir að vera birtir.
Síðan langar mig bara að nefna það (Forseti hringir.) að stundum verður misbrestur í því þegar er vísað til þeirra. Hér er t.d. talað um samkomulag Íslands og Bandaríkjanna varðandi aðgang og afnot af flugstöðinni frá 26. ágúst 1983 í greinargerð, en í frumvarpi sem varð að lögum nr. 34/2006 voru tvær aðrar dagsetningar, líka 1983 en tvær aðrar dagsetningar, um væntanlega sama samkomulag. (Forseti hringir.) Þetta væri skýrt ef við værum með þetta bara í einum gagnagrunni.
(Forseti (DME): Ég minni hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)