153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[18:30]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Varðandi alþjóðlegar skuldbindingar og annað þá kemur þessi grein þarna inn og eins og ég býst við að hv. þingmaður viti þá heyra allir þeir samningar og þau samskipti sem að öðru leyti eru undirliggjandi þættir í þessari grein undir utanríkisráðuneytið. Það er sjálfsagt mál fyrir nefndina, held ég, að ræða það. Það sem við erum fyrst og fremst að gera með þessum einfaldleika og skýrleika er að taka saman öll þessi lög, þrenn lög, þar sem eru ólíkar greinar sem vísa til nýstofnaðs Isavia 2009 og reyna að koma því fyrir á einum stað og þar með svona skuldbindingum eins og þarna er vísað til. Þær heyra að öðru leyti undir utanríkisráðuneytið og ég hvet nefndina til þess að fá utanríkisráðuneytið á fund og ræða það hvort hægt sé að gera gangskör að því að einfalda aðgang að þeim upplýsingum.