uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Frú forseti. Nú langar mig að víkja að 6. gr. frumvarpsins sem fjallar um skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar sem er dálítið óvenjulegt apparat innan hins opinbera kerfis, og hér er lagt til að fækka fulltrúum úr sex í fimm. Ég vænti þess að það sé vegna þess að sveitarfélögin Garður, Reykjanesbær og Sandgerði eru ekki lengur öll til. En mig langar að velta því upp með ráðherra hvort við værum með því að missa ákveðið jafnvægi sem ríkir í nefndinni í dag. Hún er með sex fulltrúum, þar af eru þrír frá sveitarfélögunum í nærsamfélaginu. Þetta er ákveðið jafnvægi sem ég velti fyrir mér hvort við megum við að missa, hvort halda eigi þessum fulltrúum þremur en bjóða þeim sveitarfélögum sem um ræðir að tilnefna sameiginlega í þau sæti. Síðan langar mig að spyrja líka um 6. gr., hvers vegna lokamálsgreinin vísi ekki lengur til þess að hafa skuli samráð við skipulagsnefndina varðandi bæði 2. og 4. mgr. heldur bara 2. mgr. Af hverju er 4. mgr. tekin út úr því samráði?