uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að svara aftur, ég var bara ekki nógu skýr. Ég skildi alveg þingmanninn og vissi að hann var að tala um þessi tilteknu loftför. Ég er alveg sammála honum að mengun á hvern farþega er auðvitað býsna há í slíkum vélum sem fáir ferðast í. Ég vil líka ítreka að þegar lagt er á varaflugvallargjald þá verður það að vera skattur. Það verður að vera einfalt, það verður að vera skýrt og þess vegna geta ekki verið mismunandi leiðir í því og þess vegna felst það í því að leggja á 200 kr. í gegnum þá leið sem farin er til þess að hafa það tryggt og fela Isavia rukkunina. En eins og ég segi, ég held að það ætti ekki að koma í veg fyrir að flugvellir geti haft mismunandi gjaldskrár fyrir mismunandi tegundir af flugförum.