uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Frú forseti. Það er náttúrlega gríðarlega erfitt að tala um þessi málefni á einni mínútu (Gripið fram í.) svo ég ætla að taka stutta ræðu um þetta á eftir. Hæstv. ráðherra bendir hér einmitt á að það sem gerðist í maí 2011 þegar gamla varaflugvallargjaldið var lagt af þá var raunverulega allt fjármagn meira og minna dregið út úr kerfinu. Fyrir 2011, á verðlagi 2018, var varið 1.450 milljónum á ári í flugvallarkerfi landsins. Eftir að varaflugvallargjaldið var lagt af voru það 350 milljónir. Það var rúmlega milljarður á ári sem var tekinn út úr kerfinu og það hefur síðan rústað þessu kerfi og myndast gríðarleg innviðaskuld við flugvallarkerfi landsins. Ég vildi koma inn á þetta. Í nefnd sem var skipuð 2009 vöruðu Flugstoðir, starfsmenn og yfirmenn þar, við því að þetta yrði gert með þessum hætti. Það gekk allt eftir sem þeir sögðu í bókuninni sem þeir skrifuðu við skýrslu í þessu máli. Ég fagna því mjög að þetta sé að ganga eftir núna, enda gríðarlega stórt skref að þetta verði lagað og öllum til heilla. En ég ætla að leyfa mér að taka ræðu á eftir um þetta mál.