uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Ég ætla líka að tala um varaflugvallargjald, það er pínu þemað í andsvörum núna. Þetta er líka mesta nýmælið í frumvarpinu og vekur mesta athygli og ég þakka fyrir sögulega upprifjun því að hér er í raun verið að endurvekja gamalt fyrirkomulag. Ég ætla ekki að efast um að það hafi safnast upp innviðaskuld þarna. Maður fer samt alltaf að hugsa um það, þegar svona fé tekið og rennur í ríkissjóð og síðan eru áform um að úthluta því, hvernig nákvæmlega verklagið er við úthlutun á því. Mér finnst það vera mjög almennt orðað í greinargerð og í stefnuskjölum hvert þetta rennur. Kannski er það bara mín vanþekking og ég hef ekki borað nógu vel ofan í þetta, en það væri ágætt að fá nokkur orð um verklagið við úthlutun.