uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Nei, það er ekki hans vanþekking á þessu. Fyrir nokkrum árum með lögum um opinber fjármál þá lögðum við af … (Gripið fram í.) markaða tekjustofna heitir það já, ég ætlaði að segja eyrnamerkt mál en hitt er víst fagmálið. Þar með renna hlutir í ríkissjóð en í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar þá sést þess stað í fjármálaáætlun að þetta fé rennur til baka í þessa uppbyggingu, enda er það ein af, getum við sagt, grundvallarútskýringunum og rökstuðningur fyrir því að leggja gjaldið á að við erum að bæta flugöryggi í landinu með því að byggja upp varaflugvellina. Þannig að þetta var ágætt tækifæri til að útskýra þetta, hv. þingmaður.