uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Frú forseti. Félaga mínum í efnahags- og viðskiptanefnd fannst ég eitthvað neikvæður í morgun þannig að ég ætla að rétta aðeins af kúrsinn og er bara býsna jákvæður út í þetta frumvarp og tel að það sé til bóta. Ég er þá kannski sérstaklega að hugsa um þetta varaflugvallargjald. Hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hefur auðvitað mikla þekkingu á þessu og fór ágætlega yfir hversu miklu máli það skiptir fyrir öryggissjónarmið okkar að flugvellirnir á Egilsstöðum og Akureyri sérstaklega séu vel útbúnir. Um tíma var svona næstum því eins og maður væri að hlusta á Í ljósi sögunnar þegar hann var að rifja upp atburðina frá 2018 og ég geri ekki lítið úr þeim. En það eru ýmsir aðrir vinklar á þessu máli heldur en bara flugöryggi. Hér áðan þegar ég var að tala um heilbrigðismál þá byrjaði ég á svipuðum nótum og ég ætla mér að gera núna vegna þess að það skiptir máli.
Við erum búin að búa okkur til dálítið sérstakt samfélag hérna á Íslandi. Fyrir 100 árum vildum við verða sjálfstæð og við komumst að því að í þessu risastóra en fámenna landi þurftum við að einbeita okkur að því að búa til eina fallega og góða borg og okkur hefur tekist það og við settum niður sjúkrahús, háskóla, Alþingi, dómstóla, Þjóðleikhús og svona það helsta sem prýðir slíka staði. En fyrir vikið þá þurftum við líka að gera samkomulag um það að allir landsmenn, hvar sem þeir byggju, gætu notið í rauninni þess að sækja þangað. Að einhverju leyti hefur okkur tekist þetta, að einhverju leyti ekki. Þetta hefur þó orðið til þess að segullinn sem þetta svæði hér er, er svo gríðarlega sterkur að íbúaþróun á þessum 120 árum hefur orðið með eftirfarandi hætti: Árið 1900 bjuggu 6% landsmanna í Reykjavík. Nú eru þeir 37%. Árið 1900 voru um 11–12% höfuðborgarbúar en nú eru þeir 70–80%. Hvað þýðir þetta? Jú, þetta þýðir að við höfum byggt upp allt annars konar samfélag en þekkist nokkurs staðar í Vestur-Evrópu og raunar þarf að fara og leita dæma í Djíbútí, Panama, Kúveit og Mongólíu til að finna svipaðar aðstæður. Ég held, þrátt fyrir allt, að þetta hafi verið eina leiðin okkar og skynsamleg leið. Ég held hins vegar að við séum komin svo langt í þessari þróun að við þurfum að fara að spyrna við fótum og huga að því að byggja upp víðar. Það að vera með 98,5% af öllum ferðum til og frá landsins í gegnum þessa einu gátt á suðvesturhorni landsins hefur auðvitað töluverð óþægindi og kostnað í för með sér fyrir allt hitt fólkið. Við sem förum frá Akureyri þurfum yfirleitt að stoppa einn sólarhring hér í höfuðborginni áður en við förum til útlanda og einn á leiðinni til baka og reiknað yfir í vinnutap og tíma og allt það þá er þetta alveg óheyrilegur kostnaður. Ég vil því ekki bara líta á uppbygginguna fyrir norðan sem mikilvægan lið í að tryggja öryggi. Það er rétt sem kemur fram hjá hæstv. ráðherra að við þá tilhögun er hægt að sigla flugvélum inn til landsins með minna eldsneyti sem hefur jákvæð áhrif fyrir umhverfið, en þetta þarf líka að vera spurning um að búa til ásættanleg lífsskilyrði fyrir fólk í dreifðari byggðum. Uppbygging bæði á Egilsstöðum og Akureyri, ný flugstöð og flughlöð á báðum stöðvum, ætti að geta aukið líkurnar á því að við getum byggt upp millilandaflug frá þessum stöðum, sem er spurning um lífsgæði. Það er líka spurning um samkeppnisstöðu þessara staða. Á Akureyri er sjúkrahús, á Akureyri er háskóli, á Akureyri er menningarmiðstöð sem heitir Hof og er svona minni útgáfa af Hörpu og til þess að við getum laðað til okkar fólk sem vill koma og vinna, með mikla menntun að baki og getur valið sér búsetu í Gautaborg, Kaupmannahöfn, Reykjavík eða Ósló, þá þurfum við einfaldlega að gera þessu fólki kleift líka að lifa við svipuð skilyrði. Þetta er spurning um samkeppnisstöðu líka og jafnræði og réttlæti.
Hér voru færð rök fyrir því að öryggishlutverk þessara tveggja flugvalla leiddu til umhverfislegs ávinnings, með minna eldsneyti á varatönkum. Þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé ekki líka umtalsvert skynsamlegri leið til þess að byggja upp sjálfbæra og vistvænni ferðaþjónustu hér á landi að gefa þeim sem þó það vilja kleift að fljúga beint inn á Norðurland og Austurland. Núverandi fyrirkomulag hefur þróast með þeim hætti að við erum með algjöra ofbeit ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu og suður að Gullfossi og Geysi á meðan við erum með vannýtt svæði úti um allt land. Þetta er bara ekki skynsamlegt. Það er svo margt annað sem mælir í rauninni með því að við veitum þessu frumvarpi brautargengi en bara öryggisþættirnir, þótt ég geri alls ekki lítið úr þeim og kannski skipta þeir á endanum allra mestu máli, að fólk geti verið tryggt þegar það flýgur. Þannig að ég kem bara hérna upp til að lýsa yfir jákvæðni gagnvart þessu frumvarpi.