153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[19:11]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Það er kannski vel við hæfi að 3. þm. Norðaust. stígi hér upp í pontu og ræði mikilvægi varaflugvallargjalds og sýnir einmitt mikilvægi þessa verkefnis og að þetta komist hér í gegn. Uppbygging varaflugvallanna á Íslandi hefur ekki verið í samræmi við vöxt alþjóðaflugsins síðustu misseri. Við þurfum að horfast í augu við það að það þarf að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir svo að flugvellirnir geti sinnt hlutverki sínu sem mikilvægar gáttir inn í landið, þ.e. að við getum tekið á móti fleiri farþegum og flugvélum og einmitt líka haft tækifæri til þess að stýra því hvert ferðamenn fara. Við höfum örugglega öll heyrt því fleygt að Ísland sé orðið uppselt en það er svo sannarlega ekki, því að við sjáum alveg tækifæri víðs vegar um landið þó að það sé orðið ansi þétt setið hér á suðvesturhluta landsins.

Með þessu frumvarpi er verið að leggja til svokallað varaflugvallargjald, sem er hóflegt gjald á hvern farþega sem þó getur skilað stjórnvöldum um 1,2–1,5 milljörðum á ári ef við erum að miða við 6 milljónir farþega. En auðvitað benda allar spár til þess að þessar upphæðir geti jafnvel orðið enn hærri, farþegaspár gera ráð fyrir mun fleiri farþegum. Ísland er eitt af fáum ríkjum í heiminum sem leggur engan skatt á flugferðir en skattheimta sem þessi er mjög sambærileg við það sem gerist í flestum öðrum ríkjum innan EES. Það er því mikilvægt að við nýtum skynsamlegar leiðir til að fjármagna uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum. Ég tel það því vera afar skynsamlegt skref að stíga að fara í þessa gjaldtöku og tryggja með því fjármagn til að fara í nauðsynlega og uppsafnaða uppbyggingu á innanlandsflugvöllunum okkar.

Við þurfum auðvitað að horfa til þess að forgangsraða verkefnunum okkar, byrja þar sem skórinn kreppir og ef vel gengur þá væri óskandi að hægt væri að horfa til fjármagns sem myndi renna líka til annarra flugvalla sem þjónusta t.d. sjúkraflug í landinu. Það er afar mikilvægt að það sé ráðist í uppbyggingu líka á þeim. En vegna öryggissjónarmiða þá þurfum við að hafa til taks fleiri flugvelli ef loka þarf alþjóðaflugvellinum okkar í Keflavík af einhverjum ástæðum. Við sáum það t.d. gerast síðastliðinn vetur.

Varaflugvellir eru ekki aðeins mikilvægir með tilliti til öryggissjónarmiða heldur opna þeir líka möguleikann á að fjölga farþegum og fjölga gáttum til landsins en eins og við vitum þá er ferðaþjónustan mikilvægur þáttur í atvinnulífi okkar og við höfum séð verulega fjölgun ferðamanna sem heimsækja landið okkar á undanförnum árum. Ein leið til að halda áfram að stuðla að þessum vexti er að tryggja að flugvellirnir okkar séu vel í stakk búnir til að takast á við þessa fjölgun ferðamanna. Við þurfum að byggja upp og stækka innviði flugvalla til að taka á móti fleiri flugvélum og farþegum auk þess sem það bætir líka vissulega heildarupplifun ferðamannanna. Við getum hins vegar ekki horft fram hjá þeirri fjárhagslegu byrði sem þessum framkvæmdum fylgir. Bygging og viðhald flugvalla krefst umtalsverða fjármuna og við verðum að tryggja það að við höfum nægilega fjármuni til að ráðast í þessar framkvæmdir. Þess vegna tel ég afar mikilvægt að við greiðum þessu umrædda varaflugvallargjaldi leið í gegnum þingið því að með því getum við hvatt fleira fólk til að heimsækja landið okkar, leggja sitt af mörkum til hagkerfis okkar á sama tíma og við getum aflað aukatekna til að styðja við framkvæmdir við flugvallarmannvirki. Það er því mín von að við hér í þinginu tökum höndum saman um að tryggja það að flugvellirnir okkar séu vel í stakk búnir til að takast á við vöxt ferðaþjónustunnar og viðhalda stöðu Íslands sem áhugaverðs ferðamannastaðar og ekki síður samkeppnishæfs áfangastaðar því að fyrir utan það að bæta upplifun ferðamanna þá eykur það líka lífsgæði okkar að hafa fleiri gáttir inn og út úr landinu.