uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Forseti. Mig langar rétt aðeins að víkja aftur að tveimur atriðum sem ég ræddi í andsvörum við hæstv. ráðherra. Tíminn var svo knappur hérna áðan að mér fannst ég ekki koma því almennilega frá mér. Svo er þriðja atriðið sem mig langar að nefna til viðbótar sem ekki kom fram áðan. Í fyrsta lagi er hér í 5. gr. frumvarpsins fjallað um þær alþjóðlegu skuldbindingar á sviði öryggis- og varnarmála íslenska ríkisins sem Isavia ber í starfsemi sinni að virða og standa við. Þetta er málaflokkur sem heyrir undir annan ráðherra en hér mælir fyrir frumvarpinu, það er utanríkisráðherra sem fer með þennan hlut laganna. Þótt hér sé ákvæði sem er tekið óbreytt úr gildandi lögum þá held ég að það sé full ástæða fyrir okkur að leggjast aðeins yfir þetta í vinnu nefndarinnar og sjá hvort sé hægt að koma þessu aðeins betur fyrir. Ef við ætlum að einfalda regluverkið og gera það gagnsærra, eins og hæstv. ráðherra segir að hugmyndin sé að gera með þessu frumvarpi, þá er þetta sannarlega eitt af því sem má gera betur. Skemmst er að minnast þess að fyrir þremur árum eða svo þá kom fram í svari þáverandi utanríkisráðherra við fyrirspurn að 300 alþjóðasamningar biðu birtingar. 300 alþjóðasamningar sem íslenska ríkið væri búið að gera biðu birtingar og þeir elstu í þeim stafla sem búið var að skrifa undir — ég held að sá elsti hafi verið tólf eða þrettán ára gamall. Eitthvað hefur gengið að vinna upp þessa skuld en þegar þetta er staðan varðandi alþjóðasamninga almennt þá er kannski ástæða til þess að vera með eitthvert yfirlit yfir þá alþjóðasamninga sem heyra sérstaklega til flugvallarins í Keflavík sem Isavia þarf samkvæmt þessum lögum að fylgja, að þeir séu örugglega aðgengilegir í einhvers konar yfirliti. Fordæmið er í rauninni gefið í greininni sjálfri, í fyrri málsgreininni er vísað til eignaskrár Atlantshafsbandalagsins þar sem liggur reglulega fyrir í auglýsingu sem birtist í Stjórnartíðindum um hvaða eignir er að ræða. Einfalt lítið mál. Þetta þurfum við væntanlega að ræða við hæstv. utanríkisráðherra en ekki þann ráðherra sem mælir fyrir þessu frumvarpi og ég reikna með því að nefndin muni einfaldlega gera það.
Já, svo fannst mér svo skemmtilegt misræmi milli greinargerðar í tveimur frumvörpum sem þetta mál snertir, fæ kannski að nefna það, bara af því að ég gúglaði það og prentaði út, bara svo að það sé ekki til einskis. Í greinargerðinni um 5. gr. er einmitt vísað í einn af þessum samningum sem er samkomulag Íslands og Bandaríkjanna frá 26. ágúst 1983 varðandi aðgang og afnot Bandaríkjanna að Flugstöð Leifs Eiríkssonar á ófriðartímum og í neyðartilvikum. Þetta var talað um í frumvarpi sem varð að lögum nr. 34/2006, um Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar, nema þá var þessi samningur sagður vera frá 5. júlí sama árs og hafi verið birtur 27. júlí með auglýsingu í Stjórnartíðindum. Við reiknum með því að þetta sé einn og sami samningurinn en það að ólíkar dagsetningar geti komið fram í jafn opinberum skjölum og greinargerð með frumvarpi bendir til þess að það væri til einhvers unnið að hafa skjölun á þessu miðlæga og skýrari.
Svo langar mig að nefna 6. gr. frumvarpsins sem snýr að skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar. Þessi skipulagsnefnd er að ég hygg einsdæmi í íslensku regluverki og helgast af því að öryggis- og varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli er einstakt á íslensku yfirráðasvæði. Þarna fara tveir ráðherrar með mál. Þarna hafa hefðbundin skipulagsyfirvöld ekki forræði á skipulagi og þess vegna var ákveðið í anda sátta að búa til einhverja samráðsnefnd milli sveitarfélaga og ráðherranna sem stýra þessu landsvæði. Í eldri lögum finnst mér vera eiginlega viðurkenning á skringileikanum og bara dálítið fallegt. Það er slétt tala, það eru sex fulltrúar í nefndinni. Það er óvenjulegt í nefndum að vera ekki með oddatölu af því að það er auðveldara að fá niðurstöðu í atkvæðagreiðslu með oddatölu. En þarna er slétt tala og það er jafnvægi á milli sveitarfélaga. Þrjú sveitarfélög sem voru þarna í kring fá einn fulltrúa hvert og ríkið er með þrjá fulltrúa. Nú er búið að sameina tvö af þessum sveitarfélögum þannig að ráðuneytið leggur hér til að fækka fulltrúum sveitarfélaga niður í tvo. En með því raskast jafnvægið og mig langar að beina því til nefndarinnar að við skoðum hvort við getum ekki náð jafnvæginu til baka með því að fækka bara fulltrúum ríkisins um einn á móti þannig að við verðum með fjögurra manna skipulagsnefnd þar sem formaðurinn sker eftir sem áður úr um ágreining með sínu atkvæði og það er fulltrúi ráðherra þannig að ríkið er ekki að missa nein völd með þessu. En þetta er svona tilraun til að sýna sveitarfélögunum að ríkinu þyki þetta ekki kannski sjálfsagður ráðahagur.
Svo er það þriðja atriðið sem mig langar að nefna, frú forseti. Hér var einmitt bent á það af síðasta ræðumanni að hér röðuðust fulltrúar Norðausturkjördæmis upp í ræður. Þá er nú gaman að hér er kominn þingmaður Reykjavíkur og mig langar að prófa að ræða varaflugvallargjaldið út frá örlítið öðru sjónarhorni en hefur verið rætt hér á undan. Mér finnst það bara svolítið sniðug hugmynd að nota þennan massa af ferðamönnum sem koma til landsins og líka fólk sem ferðast innan lands með flugi til þess að standa undir uppbyggingu innviða á þessu sviði. Og þó að frumvarpið tali um að hér sé hugmyndin að standa straum af hlutverki tveggja af þremur varaflugvöllum Keflavíkur sem varaflugvalla er augljóst á máli þeirra þingmanna sem töluðu hér á undan mér að afleidd áhrif verða miklu meiri. Það að byggja vellina á Egilsstöðum og Akureyri upp sem öfluga varaflugvelli nýtist í miklu fleira en bara að þeir taki við einhverjum vélum sem ekki geta lent í Keflavík af einhverjum orsökum. Það nýtist einmitt til þess að styrkja þessa flugvelli sem mögulega gátt inn í landið og dreifa þannig ferðamannastraumnum víðar um landið. Ég tek undir með þeim fulltrúum Norðausturkjördæmis sem töluðu hér um að þetta væri jákvæð afleiðing þessara breytinga en þetta sýnir líka að þetta komugjald sem verið er að leggja til hér á flugfarþega nýtist til almennari uppbyggingar innviða í þágu ferðamanna. Þá held ég að það sé alveg athugandi fyrir umhverfis- og samgöngunefnd að skoða hvort megi víkka þetta út. Við höfum nú séð nokkrar atrennur að komugjöldum eða náttúrugjöldum, eða hvað það hefur verið kallað, í gegnum árin, sem við hljótum að þurfa að skoða aftur af fullri alvöru núna þegar straumur ferðamanna er að ná áður óhugsandi hæðum. Þá geta minnstu álögur á þennan hóp skilað hinu opinbera alveg gríðarlegum tekjum til þess að byggja upp ekki bara fluginnviði heldur aðra nauðsynlega innviði til þess að tryggja öryggi ferðamanna. Það að byggja ferðamannastaði, fjölsótta ferðamannastaði, snýst ekki bara um vernd náttúrunnar þótt það sé kannski hið fyrsta yfirlýsta markmið heldur snýst það líka bara um að fólk fari sér ekki að voða í drullusvaði eða á ótryggum syllum eða hvað það er. Þetta held ég að sé full ástæða til að skoða núna þegar ráðherra leggur fram frumvarp með útfærslu á komugjaldi, þó að það kallist í frumvarpinu varaflugvallargjald.
Þá fæ ég kannski að taka fram að ég syrgi það ekkert þó að ekki sé talað um Reykjavíkurflugvöll í greinargerðinni af því að ég held að því minna sem fjárfest er í uppbyggingu þess flugvallar þangað til hann hverfur úr Vatnsmýrinni, þeim mun minni sokkinn kostnaður sé í þeim innviðum þegar við breytum þeim í borgarhverfi sem til stendur að byggja þar.
Samhliða því að skoða einhverja útvíkkun á varaflugvallargjaldinu, eins og ég nefndi, mætti jafnvel líka rifja upp ágæta hugmynd sem hv. þáverandi þingmaður, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði fram í frumvarpi á 146. löggjafarþingi um að þrepaskipta svona gjaldi þannig að því lengri sem leggurinn er, því meira greiði farþeginn í þennan pott. Þá væri líka hægt að ná einhverju svona jafnræðiselementi þannig að fólk sem ferðast nauðsynjarinnar vegna innan lands sé ekki að standa straum af jafn miklum kostnaði fyrir hvern legg og fólkið sem vegna áhuga eða hvers annars vegna ferðast um langan veg til þess að heimsækja landið. En þetta er eitthvað sem við leggjumst yfir í umhverfis- og samgöngunefnd og fáum vonandi einhvern góðan botn í.