153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

vaktstöð siglinga.

975. mál
[19:27]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003. Með lögum um vaktstöð siglinga var miðstöð skipaumferðar í íslenskri efnahagslögsögu komið á fót. Samkvæmt lögunum hefur vaktstöðin það hlutverk að veita skipum sem sigla um íslenska efnahagslögsögu öryggisþjónustu sem felst m.a. í vöktun og eftirliti með sjálfvirku tilkynningarkerfi skipa, móttöku og miðlun tilkynninga frá skipum sem flytja hættulegan og/eða mengandi varning, móttöku og miðlun neyðarkalla til viðeigandi aðila auk tilkynninga um óhöpp eða slys á sjó og vöktun alþjóðlegs neyðar- og öryggisfjarskiptakerfis skipa.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á þessum lögum sem stuðla að betri vöktun með siglingum farþegaskipa, bæta eftirfylgni við brotum gegn ákvæðum laganna og uppfæra tiltekin ákvæði laganna til samræmis við starfsemi vaktstöðvarinnar.

Í 1. gr. frumvarpsins eru lagðar til fjórar breytingar á 2. gr. laganna. Í fyrsta lagi er lagt til að bætt verði við 1. mgr. að markmið laganna sé að tryggja siglingavernd. Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga um siglingavernd, nr. 50/2004, fer vaktstöð siglinga meðal annarra stofnana með framkvæmd siglingaverndar. Vaktstöð siglinga hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna og efla varnir gegn mengun sjávar. Með hliðsjón af þessu er talið eðlilegt að lög um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, hafi að geyma skírskotun til þessa hlutverks.

Í öðru lagi er lagt til að tveir stafliðir bætist við 1. mgr. um hlutverk vaktstöðvar siglinga, annars vegar er um að ræða hlutverk stöðvarinnar við móttöku upplýsinga um úrgang og farmleifar skipa og hins vegar vöktun og greiningu verndarupplýsinga í tilkynningum í SafeSeaNet-kerfinu. Þessi ákvæði snúa að verkefnum sem vaktstöð siglinga annast nú þegar. Er því ekki verið að fela stöðunni ný verkefni.

Í þriðja lagi er lögð til breyting á 2. mgr. þess efnis að ef tilkynning berst ekki frá skipi á reglulegum tíma eða ef vaktstöð siglinga berast upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að ástæða sé til eftirgrennslunar leitar- eða björgunarskipa í íslenskri lögsögu skuli hún þegar tilkynna Landhelgisgæslu Íslands um málið. Tekur sú stofnun þá við keflinu og virkjar þá sem sjá um leit og björgun. Með þessu ákvæði er aðgreining og hlutverk aðila skýrt í samræmi við lög sem gilda um leit og björgun. Þótt ákvæði þetta sé formsatriði samkvæmt núverandi fyrirkomulagi og daglegri stjórnun vaktstöðvar siglinga sem er í höndum Landhelgisgæslu Íslands er talið rétt að skýrt sé á grundvelli hvaða laga stofnunin stýrir leit og björgun.

Í fjórða lagi er lögð til breyting á 3. mgr. 2. gr. laganna þess efnis að Vegagerðinni verði heimilað að fela Landhelgisgæslu Íslands að annast tiltekin verkefni vaktstöðvar siglinga. Þá verði Vegagerðinni jafnframt heimilt að gera þjónustusamning við annan eða aðra aðila um rekstur vaktstöðvar siglinga. Þá verði stofnuninni heimilt að gera samninga um einstaka þætti reksturs starfsemi vaktstöðvarinnar. Getur verið um einn eða fleiri samninga að ræða. Í gildandi lögum er kveðið á um að Vegagerðinni sé heimilt að bjóða út rekstur vaktstöðvar siglinga. Heimilt sé að skipta útboðinu í einstaka þætti. Ekki eru talin rök fyrir því að gera kröfu um að Vegagerðin haldi útboð á þessari grundvallarstarfsemi ríkisins á sviði siglingaöryggis. Vaktstöð siglinga gegnir mikilvægu öryggishlutverki í siglingum hér á landi. Verkefni hennar byggjast m.a. á alþjóðlegum skuldbindingum á sviði siglinga. Um sérhæft verkefni er að ræða sem kallar á sérstök fjarskiptakerfi og sérþekkingu. Er talið rétt að Vegagerðin hafi frekar heimild til að útvista verkefnum til Landhelgisgæslunnar eða annarra þar til bærra aðila. Tillaga þessi endurspeglar jafnframt rekstrarfyrirkomulag vaktstöðvar siglinga í dag en í gildi er þjónustusamningur milli Siglingastofnunar Íslands og Neyðarlínunnar um rekstur vaktstöðvarinnar. Sá samningur var upphaflega til 10 ára en hefur verið framlengdur og hefur Vegagerðin tekið við umsjón samningsins. Neyðarlínan sér í dag um rekstur þess vöktunar- og fjarskiptabúnaðar sem tilheyrir rekstri vaktstöðvarinnar samkvæmt þjónustusamningnum. Árið 2016 gerði Neyðarlínan samkomulag við Landhelgisgæslu Íslands um þjónustu við framkvæmd samnings um vaktstöð siglinga. Samkomulagið er ótímabundið en uppsegjanlegt með 12 mánaða fyrirvara. Samkvæmt því fara starfsmenn stjórnstöðvar Landhelgisgæslu Íslands með stjórn allra verkefna vaktstöðvarinnar. Þannig deilast verkefni vaktstöðvarinnar í dag milli Neyðarlínunnar og Landhelgisgæslu Íslands, en Neyðarlínan er ábyrg, jafnt fjárhagslega og faglega, gagnvart Vegagerðinni fyrir þeirri þjónustu sem skylt er að veita samkvæmt lögum um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, og þeim reglugerðum sem um starfsemina gilda.

Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að nýrri málsgrein verði bætt við 7. gr. laganna. Í 7. gr. er kveðið á um tilkynningu áður en komið er til hafnar. Samkvæmt greininni skulu skip, 300 brúttótonn að stærð og stærri, nema ríkisför og fiskiskip styttri en 45 metrar, sem eru á leið til hafnar, tilkynna komu sína til vaktstöðvar siglinga með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn er í reglugerð. Lagt er til að hin nýja málsgrein kveði á um að farþegaskip sömu stærðar, sem sigli milli hafna hér á landi, skuli tilkynna vaktstöðinni um áætlaða leið að næstu höfn með tilteknum fyrirvara sem ákveðinn verði í reglugerð.

Landhelgisgæsla Íslands hefur bent á að farþegaskip sem sigla milli hafna hér á landi fari ekki ávallt beina leið að næstu höfn. Þau sigli um firði í útsýnisferðum og hafi jafnvel viðkomu og hleypi farþegum í land án þess að leggja að höfn. Slíkar siglingar og viðkomur séu ekki tilkynningarskyldar og vaktstöðin viti fyrir vikið ekki ávallt um áætlanir þessara skipa sem getur valdið hættu. Rétt sé að þessi skip veiti vaktstöðinni upplýsingar um þá leið sem þau hyggjast fara.

Í 3. gr. er lagt til að við reglugerðarákvæði laganna, 1. mgr. 17. gr., bætist ný málsgrein sem heimili ráðherra að setja reglugerðir um tilkynningarskyldu skipa hvort sem það sé vegna komu til eða brottfarar frá höfn, að því leyti sem það er nauðsynlegt vegna skuldbindinga samkvæmt samningi um Evrópska efnahagssvæðið. Í lögum um vaktstöð siglinga er að finna heimild til reglugerðarsetningar en talið er nauðsynlegt að setja þetta ákvæði til að veita frekari lagastoð fyrir innleiðingum gerða sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn og breytingum sem kunna að verða á þeim síðar meir.

Í 4. gr. er lagt til að í nýrri grein, 18. gr. a, verði kveðið á um stjórnvaldssektir fyrir brot gegn fimm tilteknum ákvæðum laganna sem varða tilkynningarskyldu og leiðsögu. Gildandi lög gera fyrst og fremst ráð fyrir því að brot gegn lögunum séu kærð til lögreglu til rannsóknar. Málsmeðferð er almennt kostnaðarminni fyrir aðila þegar stjórnvöld beita stjórnsýsluviðurlögum en þegar dómstólar fella dóm í opinberum málum. Kostnaður hins brotlega, t.d. vegna aðstoðar lögmanna, er oftast einnig minni þegar um stjórnsýsluviðurlög er að ræða. Þá tekur almennt mun skemmri tíma að rannsaka og beita stjórnvaldsviðurlögum en refsingu. Þá er það almennt skilvirkara úrræði að stjórnvöld beiti stjórnvaldsviðurlögum en að þau beri málið undir dómstóla. Þau stjórnvöld sem fara með eftirlit á ákveðnu sviði eru oft í lykilaðstöðu til að meta hvernig þurfi að bregðast við á skilvirkan hátt til að halda uppi lögum. Er því talið rétt að leggja til að lögfest verði ákvæði um stjórnvaldssektir fyrir tiltekin brot gegn ákvæðum laganna og reglum sem byggja á þeim.

Verði frumvarp þetta að lögum getur það haft óverulegan kostnað í för með sér fyrir stjórnsýsluna. Frumvarpið er ekki talið hafa önnur áhrif á hagsmunaaðila eða stjórnsýslu.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar sem og 2. umr.