153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

vaktstöð siglinga.

975. mál
[19:36]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði að víkja að einu ákvæði frumvarpsins, um sektargreiðslurnar. Ég tek undir með hæstv. innviðaráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni, að það er ábyggilega til bóta að einfalda það ferli. Hins vegar velti ég fyrir mér hvort þessar sektir séu ekki fulllágar, sérstaklega ef við horfum til c-liðar sem varðar tilkynningar um komu með hættulegan eða mengandi varning. Þær sektir eru eingöngu á einstaklinga 25–200 þús. kr. og á lögaðila 25–500 þús. kr. Ég verð að segja fyrir mitt leyti að mér finnst þetta ekki vera í neinu samræmi við alvarleika þess ef verið er að flytja slíkan farm sem getur haft stórskaðlegar afleiðingar fyrir viðkvæmt lífríki sem er að finna víða við strendur Íslands. Ég held að ef ætlunin er að sektirnar feli í sér einhvern fælingarmátt þá þurfi einfaldlega að bæta svolítið hressilega í, í það minnsta hvað varðar þennan þátt. Mig langaði að spyrja ráðherra hvort ætlunin hafi ekki verið sú að þessar sektir ættu að endurspegla betur alvarleikann.