vaktstöð siglinga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég get svarað því þannig að ef um meiri háttar brot er að ræða, alvarlegri, eru þau eftir sem áður kæranleg. Hér er verið að beita stjórnvaldssektum og það verður að vera mat hverju sinni hvort það sé meiri háttar brot eða það varði hugsanlega stjórnvaldssektum. Svo er það auðvitað líka þannig samkvæmt íslenskum lögum að verði mengunarslys eða eitthvert óhapp vegna brota er útgerð þess skips og tryggingartakar ávallt ábyrg fyrir öllum þeim kostnaði sem þar hlýst af. Það reynir náttúrlega á það núna við þetta hálfgerða strand flutningaskipsins á Húnaflóa, sem vonandi sleppur og fer vel. En það eru þessi lög fyrir hendi sem gera það að verkum að ég óttast þetta ekki í sjálfu sér. Ég treysti því að nefndin fái enn betri og viðhlítandi svör við þessum áhyggjum sem þingmaðurinn varpar hér fram.