153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

vaktstöð siglinga.

975. mál
[19:39]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið við andsvari og já, ég deili því með honum að við vonumst auðvitað til þess að þetta hálfgerða strand fari vel og ekki hljótist af neitt meiri háttar tjón, hvorki fyrir útgerðina né lífríkið. Ég held engu að síður að sekt upp á 500.000 kr. fyrir útgerð geti varla verið fullnægjandi. Ég myndi í það minnsta hvetja til þess að í frekari vinnslu þessa frumvarps verði skoðað hvort ekki ætti að hnika þessum tölum eitthvað til þannig að þær feli í sér einhvern raunverulegan fælingarmátt til þess að þeir sem sigla fari að lögum og sinni því sem sett er fram í frumvarpinu þannig að það geti náð markmiðum sínum.