153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

vaktstöð siglinga.

975. mál
[19:41]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég treysti því auðvitað að nefndin fari vel yfir þetta en mitt sjónarmið er að við það að taka upp þessar stjórnvaldssektir þá munum við geta leyst minni háttar mál sem ellegar hafa kannski lagt af stað inn í dómskerfið með kæru til lögreglu og hefur síðan dagað uppi. Þau væru þá afgreidd hér og nú. Það verður líka að vera eitthvert samræmi í þeim sektum sem stjórnvöld beita heilt yfir, en ég treysti því að nefndin skoði það. En þegar um alvarlegri mál er að ræða þá verða þau kærð auðvitað, væntanlega til lögreglu og þá getur verið um stærri og hærri upphæðir að ræða. Annars þakka ég bara fyrir umræðuna.