153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

útlendingar.

944. mál
[19:42]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Frumvarpið var unnið í samráði við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, forsætisráðuneytið, Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og Vinnumálastofnun.

Frá gildistöku útlendingalaga hafa verið gerðar breytingar nokkrum sinnum, þó ekki veigamiklar, er snúa að dvalarleyfum og er frumvarp þetta liður í nauðsynlegri endurskoðun laganna og felur í sér efnismeiri breytingar varðandi dvalarleyfi en gerðar hafa verið til þessa. Frumvarpið er veigamikill liður í að bregðast við tillögum starfshóps um atvinnuréttindi útlendinga utan EES sem var skipaður fulltrúum þriggja ráðuneyta en tillögur hans voru kynntar á blaðamannafundi í mars sl. Í frumvarpinu eru breytingar sem taka mið af þróun og framkvæmd málaflokksins með hliðsjón af ábendingum frá Útlendingastofnun.

Það er stefna þessarar ríkisstjórnar að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og þetta frumvarp er mikilvægur hlekkur í þeirri keðju. Erlendir ríkisborgarar utan EES-svæðisins hafa í auknum mæli óskað eftir því að setjast að á Íslandi og hefur það verið í takt við aukna fólksflutninga í heiminum. Löggjöf á þessu sviði þarf að taka mið af og samræmast kröfum íslensks samfélags með tilliti til hagvaxtar og aukinnar kröfu um samkeppnishæfni landsins. Er því nauðsynlegt að gera breytingar sem tengjast dvalar- og atvinnuleyfum útlendinga hér á landi. Tilgangur frumvarpsins er m.a. að gera Ísland að eftirsóknarverðari stað og samkeppnishæfari kost fyrir sérhæft vinnuafl og námsmenn og um leið að byggja undir áframhaldandi lífsgæði og velsæld til framtíðar. Við viljum að hæft og hugvitssamt fólk, sama hvaðan það kemur, líti á Ísland sem mögulegan áfangastað, þar sem það getur látið gott af sér leiða, sér sjálfu og Íslandi til hagsbóta.

Virðulegi forseti. Ég geri nú nánari grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins:

Í 1. gr. þess er lagt til að doktorsnemar megi vera staddir hér á landi þegar þeir sækja um námsmannaleyfi. Samkvæmt gildandi lögum verða þeir að sækja um leyfið áður en þeir koma til landsins auk þess sem þeim er óheimilt að koma til landsins áður en umsóknin hefur verið samþykkt. Útlendingar sem sækjast eftir því að komast í doktorsnám á Íslandi hafa allir lokið samsvarandi meistaranámi og þurfa að fara í gegnum ítarlegt umsóknarferli hjá viðkomandi háskóla.

Í 2. gr. frumvarpsins er lögð til sú breyting að í stað þess að umsækjandi þurfi að undirrita umsókn um dvalarleyfi sé fullnægjandi að umsóknin stafi sannanlega frá umsækjanda, svo sem með rafrænni undirskrift eða öðrum rafrænum lausnum. Breytingin er hluti af vinnu stjórnvalda við að stafvæða afgreiðslu umsókna um dvalarleyfi.

Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að veita fyrsta dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar í fjögur ár en samkvæmt gildandi lögum eru það tvö ár. Þá verður heimilt að endurnýja leyfið til fjögurra ára í stað tveggja. Jafnframt verður heimilt að veita sérfræðingum dvalarleyfi til eins árs í stað þriggja mánaða þegar slit verður á ráðningarsambandi þeirra svo að þeir geti leitað sér nýs starfs á grundvelli sérþekkingar sinnar.

Í 7. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að veita fyrsta dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki til lengri tíma en eins árs þegar um er ræða skýrt afmarkaða og tímabundna verkframkvæmd. Einnig verður heimilt að endurnýja leyfið í tvö ár í stað eins árs auk þess sem umsækjendur þurfa ekki lengur að dvelja samfellt í tvö ár erlendis áður en þeir geta sótt um að nýju. Þá verður heimilt að veita þeim dvalarleyfi til sex mánaða þegar slit verður á ráðningarsambandi svo þeir geti leitað sér nýs starfs en gildandi lög gera ekki ráð fyrir þeim möguleika.

Í 8. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að veita íþróttafólki fyrsta dvalarleyfi til tveggja ára í stað eins árs.

Í 9. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að veita dvalarleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings til eins árs í stað sex mánaða.

Í 10. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að endurnýja dvalarleyfi útlendings sem lokið hefur háskólanámi hér á landi í allt að þrjú ár frá útskriftardegi til atvinnuleitar hérlendis á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar en samkvæmt gildandi lögum er sú tímalengd sex mánuðir. Með tillögunni er útlendingum í þessari stöðu veitt aukið svigrúm til að finna sér starf hér á landi á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar eftir útskrift úr háskólanámi.

Í 11. gr. frumvarpsins er lagt til að heimilt verði að endurnýja dvalarleyfi vegna vistráðningar í eitt ár, að hámarki í tvö ár alls, en samkvæmt gildandi lögum er ekki heimilt að endurnýja slíkt dvalarleyfi. Einnig er Útlendingastofnun veitt heimild til að fela sérstökum aðila að hafa eftirlit með vistráðningum. Með þessu verður stofnuninni unnt að efla eftirlit með vistráðningum hér á landi og þannig tryggja betur að réttindi vistráðinna séu virt.

Í 12. gr. frumvarpsins er m.a. lagt til að dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki, fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- og þjónustusamnings og námsmenn, veiti rétt til fjölskyldusameiningar. Er breytingin nauðsynleg til að gera slík dvalarleyfi meira aðlaðandi fyrir fjölskyldufólk sem vill koma hingað til lands og starfa eða fara í nám.

Í 13. gr. frumvarpsins er lagt til að ráðherra verði heimilt að útfæra nánar í reglugerð þau viðmið sem stjórnvöld skuli líta til við mat á því hvort rökstuddur grunur sé til staðar um að til hjúskapar eða sambúðar hafi verið stofnað í þeim tilgangi að afla dvalarleyfis. Er nauðsynlegt að stjórnvöld hafi skýrari viðmið við það mat en gildandi lög og lögskýringargögn með þeim veita ekki fullnægjandi leiðbeiningar.

Í 17. gr. frumvarpsins eru, í samráði við félags- og vinnumarkaðsráðherra, lagðar til samsvarandi breytingar á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002. Auk þess verður heimilt starfshlutfall erlendra námsmanna hækkað úr 40% í 60% sem veitir þeim aukið svigrúm til atvinnuþátttöku samhliða námi. Þá verða erlendir makar og sambúðarmakar útlendinga sem veitt hefur verið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og börn þeirra að átján ára aldri sem eru í forsjá og á framfæri þeirra undanþegin kröfu um tímabundið atvinnuleyfi.

Loks er lagt til að bráðabirgðaákvæði bætist við lög um atvinnuréttindi útlendinga þess efnis að félags- og vinnumarkaðsráðherra skuli skipa starfshóp til að gera tillögur að lagabreytingum um sjálfstætt starfandi einstaklinga og að tímabundin atvinnuleyfi skuli skilyrt við tilteknar atvinnugreinar í stað starfs hjá tilteknum atvinnurekanda. Skal starfshópurinn samanstanda af fulltrúum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu og m.a. hafa hliðsjón af löggjöf í nágrannalöndunum og skila tillögum til ráðherra innan sex mánaða frá gildistöku laga þessara.

Virðulegur forseti. Ég hef farið yfir helstu efnisatriði frumvarpsins, en að öðru leyti vísast til greinargerðar þess og athugasemda við einstök ákvæði þess. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til háttvirtrar allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umr.