útlendingar.
Forseti. Ég velti fyrir mér einu atriði í þessu frumvarpi, allnokkrum svo sem en aðallega einu. Það er varðandi dvalarleyfi vegna doktorsnáms. Strax í kjölfarið á mastersnámi og viðkomandi er á landinu þá getur hann sótt um doktorsnám á mun auðveldari hátt en áður. En af hverju ekki líka ef hann er í BA- eða BS-námi eða einhverju því um líku og vill sækja um í mastersnámi eða jafnvel á eftir að klára doktorsnám og yfir í „postdoc“-nám og þess vegna yfir í atvinnuréttindi eða því um líkt? Ég er bara að velta fyrir mér hvort það séu skorður einmitt bara við doktorsnámið eða hvort það sé hægt að útvíkka þetta aðeins meira miðað við aðrar aðstæður eða hvort það þurfi ekki ef það er fært nú þegar í gegnum einhverjar aðrar leiðir.