153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

útlendingar.

944. mál
[19:51]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Meginreglan hefur verið sú að ef þú dvelur hér þá geturðu ekki sótt um, það er verið að víkja frá þessari reglu. Þetta er það sem var skoðað í þessu. En það er í sjálfu sér ekkert á móti því að nefndin skoði þetta atriði sérstaklega ef tilefni þykir til.