153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

útlendingar.

944. mál
[19:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er mjög gott að fá svoleiðis hvatningu, ég legg það inn í nefndina, ég sé að formaðurinn er hérna, hann getur kannski krotað niður athugasemd um þetta. En eins og er, ég veit ekki hvort það sé hægt að kenna háskólunum eða Útlendingastofnun um en þegar námsmenn hafa verið að sækja um nám hérna hefur gengið rosalega illa að klára það ferli. Það getur að hluta til verið eitthvað í skriffinnskunni í háskólanum, svo sem, eða innan húss hjá Útlendingastofnun, en það hefur verið spurt t.d. um kynferði maka, að sanna samkynhneigð sína eða þess háttar. Það er eitt nýlegt dæmi um það. Almennt séð veltir maður fyrir sér hvort það sé hægt að straumlínulaga aðeins þetta ferli á betri hátt og þá kannski þyrfti ég að tala við háskólaráðherra hvað það varðar.