153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

útlendingar.

944. mál
[19:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það er ánægjulegt að sjá mjög jákvætt frumvarp um breytingu á lögum um útlendinga frá hæstv. dómsmálaráðherra, ég fagna því. Það eru nokkur atriði sem maður vonast til að þetta frumvarp nái að laga. Ég hef heyrt ansi margar sögur um það þegar útlendingar eru að koma hingað í doktorsnám eða í rannsóknarstöðu að loknu doktorsnámi, ekki í kennslu sem dósent eða lektor eða neitt svoleiðis heldur í rannsóknarstöðu sem kallast á enskunni „postdoc“, ég er ekki alveg viss hvaða orð er notað yfir það á íslensku, síðdoktor eða eitthvað því um líkt, ég er ekki viss um að það sé góð þýðing. En það hefur oft tekið þó nokkurn tíma að klára allt umsóknarferlið. Þó að viðkomandi sé kominn með svar um að hann sé kominn með stöðuna og kominn í námið þá þarf hann að fá kennitölu til að geta opnað bankareikning til að fá inn greiðslu til að geta greitt leigu og þess háttar. Ég er með tiltölulega nýleg dæmi þar sem það var ekkert rosalega jákvætt að heyra hvernig kerfið brást við. Maður veltir fyrir sér, svona á þessari tölvuöld, hvort það sé ekki hægt að gera hlutina aðeins skilvirkari tölvunarfræðilega séð, sérstaklega hvað þetta varðar. Þegar háskólinn er búinn að segja: Hérna er einstaklingur sem við erum búin að taka inn í nám, hann er búinn að uppfylla öll skilyrði hvað það varðar, þá sé þetta bara einn smellur og allt fer í gang í öllu kerfinu og sjálfkrafa búið að kvitta undir allt og kennitala og allt svoleiðis berst bara sjálfkrafa. Það er verið að leggja ákveðinn grunn að ákveðnum stafrænum breytingum hérna sem ég vonast til að gerist sem hraðast. Í heildina þá lítur þetta ágætlega út og ég hlakka til þess að nefndin skoði samfelluna þarna á milli, á milli grunnnámsins og síðan yfir í meistaranám og doktorsnám og svo „postdoc“-námið og jafnvel stöðu, það getur þess vegna vel verið að fólk sé ráðið í kennara- eða kennslustöðu í kjölfarið, þannig að það sé einhver samfella í þessu. Það væri held ég gott að sjá það, heildrænt á litið, í staðinn fyrir að hér sé bara verið að taka út doktorsnámið, yfirfærslu úr mastersnámi í doktorsnám. En ég er bara mjög jákvæður gagnvart þessu frumvarpi fljótt á litið og hlakka til þess að sjá það í afgreiðslu hérna.