153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:05]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir sína framsögu og það verður gaman að fylgjast með framgangi þessa máls í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í ljósi reynslunnar af breyttum lögum í framhaldi af kosningum til Alþingis annars vegar og sveitarstjórna hins vegar. En mig langar að nota tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér að það séu einhverjir möguleikar á því að styðja við frekari lýðræðisþátttöku ungs fólks til að hafa aukin áhrif á sitt nærsamfélag með lækkun á aldursmörkum kosningaréttar, til að mynda til sveitarstjórnarkosninga.