153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og fram kom í framsögu minni þá er það þannig að þegar verið er að kjósa um einstök málefni á vettvangi sveitarstjórna er það í raun í höndum sveitarstjórnar að ákveða þessi aldurstakmörk. Ég í sjálfu sér ætla ekki að hafa hér einhverja sérstaka skoðun á því hvort tilefni sé til þess sérstaklega við sveitarstjórnarkosningar að lækka kosningaaldur. Ég tel almennt séð að um frumvarp sem þetta sé mikilvægt að sé sem víðtækust sátt á Alþingi. Það er í raun Alþingis að ákveða þetta mál og mikilvægt að þar sé sem breiðust sátt um þær reglur sem um kosningar gilda í okkar samfélagi.