kosningalög o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og við erum alveg sammála um það, það skiptir mjög miklu máli að það ríki sem mest sátt um þetta. Spurningin var líka til komin vegna þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað í framhaldi af kosningum, bæði til Alþingis og sveitarstjórna, um dvínandi þátttöku í kosningum í einhverjum tilfellum. Ég held að það sé atriði sem við hljótum öll hér inni að geta verið sammála um að skiptir máli að ná að hífa upp. Þetta er ein tillaga í því að horfa til þess, sér í lagi að kosningaaldur til sveitarstjórnarkosninga verði almennt lækkaður. Þar hefur verið nefnt sem dæmi úr 18 árum í 16, en ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru skiptar skoðanir um það mál. En varðandi kosningaþátttöku almennt vil ég spyrja hvort ráðherra geti í stuttu máli, hafandi til þess eina mínútu, upplýst mig um það hvort samhliða þeirri vinnu að þessu frumvarpi sem hann mælir hér fyrir hafi þetta atriði verið ávarpað sérstaklega, þ.e. að reyna að auka og hækka hlutfallið, sér í lagi innan einstakra sveitarfélaga eða einstakra hópa, í kosningaþátttöku almennt.