153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:08]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við gerð þessa frumvarps var ekki sérstaklega verið að skoða til hvaða ráðstafana er hægt að grípa til þess að auka kosningaþátttöku. Ég veit ekki hvort lækkun kosningaaldurs væri sérstaklega til þess fallið að hækka hlutfall þeirra sem koma á kjörstað og hafa kosningarrétt. Það eru kannski önnur atriði sem við þurfum að horfa til. Almennt séð, ef horft er til ekki allt of langs tíma, þá hefur nú kosningaþátttaka á Íslandi verið mjög góð en vissulega verið að gefa eftir undanfarin ár og það er áhyggjuefni sem ég held að við hljótum öll að deila og full ástæða til að skoða það hvort hægt sé að stíga einhver skref til að auka virkni fólks í því að nýta lýðræðislegan rétt sinn til að kjósa. Það er ekki sjálfsagt í öllum löndum.