kosningalög o.fl.
Virðulegur forseti. Við getum verið sammála um það að ýmsir hnökrar hafi komið fram við framkvæmd síðustu kosningalaga og það hefur gengið upp og ofan eins og hv. þingmaður nefndi. Það er ekki gott þegar þarf að vera að vinna að málum í aðdraganda kosninga með einhvers konar reddingum, um það erum við sammála. Það er akkúrat markmiðið með þessu frumvarpi, að skýra þetta betur, leiðrétta auðvitað þá annmarka og slíkt sem voru á lögunum og reyna að girða fyrir að það þurfi að grípa til einhverra reddinga, eins og hv. þingmaður orðaði það. Það eru ákveðin nýmæli í þessum lögum, þau hafa nú ekki alveg bara birst þarna af sjálfu sér, það er búið að liggja mjög yfir þessu núna og verið gefinn góður tími og reynt að vanda til verka. Við málsmeðferðina núna í þinginu er viðbúið að það komi fram ábendingar og það er ekki ástæða til annars en að hvetja nefndina til að vera opin fyrir öllum slíkum ábendingum sem kunna að koma fram, en hvort tilefni er til að fara í einhverjar tilraunakosningar — ég veit ekki hvernig kosningaþátttakan yrði í því. Það er auðvitað búið að reyna að keyra þessi módel í aðdraganda og við gerð frumvarpsins þannig að menn telja sig hafa girt fyrir það að hér liggi einhver mistök falin.