kosningalög o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svar við andsvari. Á mínu heimili hefur stundum verið sagt: Það sem einu sinni hefur aldrei skeð getur alltaf gerst aftur. Það gerðust nefnilega í síðustu tvö skipti sem við höfum haldið kosningar afar bagalegir hlutir sem við viljum klárlega ekki að gerist aftur. Þess vegna myndi ég leggja til að það verði búið að prófa í það minnsta í einhvers konar líkingum, sviðsmyndum, eins og það að þurfa að grípa til uppkosningar eða næmisgreiningar þannig að hægt sé að framkvæma það sem lagt er fyrir í lögunum fumlaust og svo sómi sé að. Það er algjört lykilatriði að framkvæmd kosninga sé fumlaus. Þannig tryggjum við að það sé traust á kosningum og full heilindi.