153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Einn mögulegur galli sem ég sé á frumvarpinu er í 40. gr. varðandi uppkosninguna. Uppkosning er endurtekning á fyrri kosningu, framboðslistar þeir sömu og í fyrri kosningu. En nú getur það verið svo að framboð sé einfaldlega ólöglegt, listi sé ekki tækur til að taka þeim niðurstöðum sem voru í kosningunum sem veldur því að það verði uppkosning. Það var eitt af skilyrðunum í gömlu kosningalögunum. Hvernig það er að búið að þróast síðan — ég er ekki með eins mikla reynslu af nýju kosningalögunum og þeim gömlu. Þá þyrfti að kjósa aftur með sömu framboðum og eitt af þeim framboðum væri ekki löglegt til framboð, sem myndi valda aftur uppkosningu o.s.frv. Ég velti fyrir mér hvort nefndin geti skoðað þetta en mér sýnist þetta vera, alla vega miðað við gömlu lögin, galli. Ég held að þetta hafi ekki verið uppfært sérstaklega í nýju lögunum.