153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Síðan er það varðandi íbúakosningar sveitarfélaga þar sem er heimilt fyrir sveitarstjórn að miða kosningaaldur við 16 ár í íbúakosningum, þessu var einmitt beint að ráðherra í fyrra andsvari. Mér finnst áhugavert að þarna sé aldurstakmarkið sett niður í 16 ár og ég fagna því mjög. En eins og með önnur atriði hérna, eins og næmisgreininguna upp á 20 o.s.frv., af hverju það var ekki sett — frumvarp um breytingu á kosningaaldri niður í 16 ár var komið hérna til 3. umr. á síðasta kjörtímabili, sem er mjög áhugavert að hafi hætt þá. Þá var búið að greiða atkvæði sérstaklega um breytinguna á aldrinum niður í 16 ár, meiri hluti þingsins hafði sagt já við því þá. Það er náttúrlega annað þing núna. Ég velti því fyrir mér af hverju ráðherra skellti því ekki hérna inn í þetta frumvarp til að athuga hvort þingið væri ekki enn á sömu skoðun og á síðasta kjörtímabili.