153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:18]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þarna held ég að nefndin ætti að skoða þessi mál en það eru augljóslega ákveðnir annmarkar á því, a.m.k. eru þau sjónarmið uppi, að um slíkt sé að ræða, að þegar menn eru ekki kjörgengir þá hafi þeir kosningarrétt. Það má vel vera að það séu ekki allir sammála því sjónarmiði en það er sjónarmið sem hefur verið viðhaft og ræður eflaust heilmiklu í því sem hér kemur fram. En aftur kemur að því að það er þingið sem þarf að ná sem bestri sátt um svona grundvallaratriði í kosningalöggjöf eins og aldursviðmiði.