153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[20:19]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Forseti. Nú eru hér til umfjöllunar breytingar á kosningalögum. Ég fagna því að lögunum verði breytt enda hafa þó nokkrir vankantar verið á núgildandi lögum. Sérstaklega er ánægjulegt að taka eigi tillit til athugasemda sem komu fram, m.a. frá þeim sem hér talar, um að skýra ákvæði um áróður á kjörstað og nágrenni því að nokkuð bar á slíku við síðustu kosningar til sveitarstjórna en viðbrögð við ábendingum um það voru afar takmörkuð. Það er samt ekki hægt annað en að benda á að hér er ekki verið að taka á ábendingum sem ítrekað hafa komið fram um að gerðar verði leiðréttingar á fjölda þingmanna kjördæma og fjölda uppbótarþingmanna. Nú er Suðvesturkjördæmi langfjölmennasta kjördæmi landsins og jafnframt það kjördæmi þar sem flest atkvæði eru á bak við hvern þingmann. Í dag eru kjördæmin sex og má gróflega skipta í þrjá flokka miðað við landsmeðaltal og fjölda atkvæða á bak við þingmenn. Fyrst eru Suðurkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi sem ná nokkurn veginn landsmeðaltali. Svo eru Norðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi þar sem færri atkvæði eru á bak við hvern þingmann og að lokum er það Suðvesturkjördæmi sem ætti að vera með u.þ.b. 18 þingmenn til að ná landsmeðaltali en hefur í dag 14.

Kosningalögin leyfa, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að leiðrétta þingmannafjölda. Norðvesturkjördæmi er hins vegar komið niður í það lágmark sem stjórnarskráin leyfir. Því er ekki lengur hægt að fækka þingmönnum þar þrátt fyrir að þar sé atkvæðavægið mest heldur þyrfti, næst þegar kemur til þess að þurfi að leiðrétta þingmannafjöldann, að fækka í Norðausturkjördæmi. Því er óhætt að segja að núverandi kjördæmaskipan sé einfaldlega komin langt fram yfir síðasta söludag og löngu tímabært að bregðast við og leiðrétta hlut Suðvesturkjördæmis.

Einnig er löngu tímabært að fjölga uppbótarþingmönnunum. Ef litið er til þeirra skoðanakannana sem nú eru birtar er ljóst að uppbótarþingmenn eru allt of fáir og líklegt að tvö til þrjú framboð í kringum 5% lágmarkið myndu taka til sín megnið af þeim uppbótarþingmönnunum sem í boði væru. Það myndi bjóða hættunni heim því önnur framboð fengju þá engan veginn þann þingstyrk sem atkvæðafjöldi þeirra ætti að tryggja þeim. Það er stóralvarlegt að ekki sé brugðist við þessu og í raun er hvort tveggja nauðsynlegt; að tryggja jafnt atkvæðavægi og að þingflokkar séu af þeirri stærð sem atkvæðafjöldi þeirra segir til um.

Það sem er þó jákvætt við frumvarpið er að kjördagur sveitarstjórnarkosninga hefur verið færður aftar. Ljóst var við framkvæmdina síðast að kjördagur var of snemma sem virðist hafa komið niður á kjörsókn, enda mikið um að vera þann dag, sérstaklega með tilliti til prófa í skólum og ýmissa annarra viðburða sem voru á sama degi. Raunar hefði sennilega verið réttara að færa kjördag enn aftar og ég hvet hæstv. dómsmálaráðherra og allsherjar- og menntamálanefnd til að kanna hvort það sé ekki mögulegt.

Eins og ég vék að í ræðu um störf þingsins fyrr í dag hef ég reynslu af því að vera umboðsmaður lista. Það hefur verið hvort tveggja fróðlegt og ekki síður afar tímafrekt og það er tekur einfaldlega tíma að rækja skyldur umboðsmanns með þeim hætti sem þarf til að nægjanlega vel sé gert. Það urðu mér því mikil vonbrigði að upplifa að umboðsmenn hafa í raun fá ef nokkur úrræði til að fá úr því skorið hvort tiltekin atriði framkvæmdar standist lög og reglugerðir. Sem dæmi stendur í reglugerð að á kjörstað við utankjörfund eigi að finna á áberandi stað upplýsingar um framboð á lista. Á það var bent við síðustu kosningar að þetta skorti en við því var ekki brugðist fyrr en seint og þá með ófullnægjandi hætti. Það var gert þannig að allar tilkynningar sveitarfélaga voru prentaðar út eins og þær komu frá sveitarfélögum. Þar var ekki að finna neina samræmda framsetningu. Listar fóru sumir milli blaðsíðna, aðrir ekki, og í einhverjum tilfellum voru framboðin ekki einu sinni birt í stafrófsröð. Sem umboðsmaður hafði ég engin úrræði önnur en að bóka athugasemd við þetta í gerðabók en betra hefði verið að geta fengið úr þessu leyst á staðnum. En kærunefnd kosningamála hefur slík mál ekki til umfjöllunar og getur því hvorki úrskurðað né leyst úr slíkum málum.

Við undirbúning utankjörfundar óskuðu umboðsmenn eftir því að fá að taka myndir af innsiglum kjörkassa. Því var hafnað. Slíkt leyfi fengu hins vegar auðveldlega fjölmiðlamenn sem fjölluðu um kosningarnar, eðlilega. Hins vegar reyndist það umboðsmönnum oft erfitt að stýra í kringum þær hömlur sem störfum þeirra voru settar og sumar afar handahófskenndar og í ósamræmi við aðra framkvæmd.

Það voru fleiri atriði við framkvæmdina sem stóðust enga skoðun en reyndist ómögulegt að fá leiðrétt, t.d. voru skírteini umboðsmanna útbúin á þann hátt að þau voru á sama tíma brot á persónuverndarlögum og áróður á kjörstað. Við að útbúa kjörskrá komu einnig fram annmarkar, t.d. var gerð breyting sem takmarkaði með mjög skömmum tíma fyrirvara og tímafresti námsmanna erlendis til að skrá sig á kjörskrá. Raunar sætir það nokkurri furðu að íslenskir ríkisborgarar erlendis þurfi yfir höfuð að skrá sig á kjörskrá. Auðvitað væri eðlilegast að allir íslenskir ríkisborgarar væru sjálfkrafa skráðir í kjörskrá, óháð búsetu.

Og talandi um kjörskrá þá eru það þó nokkuð mikil vonbrigði að nú standi til að framlengja bráðabirgðaákvæði um að fresta gildistöku rafrænnar kjörskrár. Tíminn ætti að vera nægur til þess að útbúa rafræna kjörskrá. Það kemur sannarlega niður á framkvæmdinni að svo sé ekki.

Eins og ég sagði áðan vék ég, í ræðu um störf þingsins í dag, að reynslu minni sem umboðsmaður lista og vék þá að vandræðum sem urðu við talningu í Norðvesturkjördæmi. Einn möguleiki til úrlausnar þar var svokölluð uppkosning, þ.e. einfaldlega að endurtaka kosninguna, en vegna lagatúlkunar var það metið ómögulegt. Uppkosning var raunverulega vel möguleg. Það hefði einfaldlega átt að boða til kosninganna og fylgja lögum við framkvæmdina eins og stendur í ákvæðinu um uppkosningu. Slík framkvæmd myndi raunar gefa framboðum tækifæri til að bregðast við, hafi verið annmarkar á framboðum, eða, ef þess gerist þörf, að hreinlega falla frá framboði. En slík viðbrögð virðast ekki í boði miðað við þá útfærslu sem hér er lögð til.

Svo er ómögulegt annað en að minnast á þann raunveruleika að ef uppkosning stendur yfir í nokkrar vikur gætu framboð borið af því þó nokkurn kostnað. Það er alveg óútfært hvernig standa eigi að þeim kostnaði en ljóst er að í tilfellinu sem kom upp í Norðvesturkjördæmi var það ekki á ábyrgð framboða að neinu leyti. Því er brýnt að tryggja jafnræði framboða komi til þess að fara þurfi í uppkosningu, enda má gera ráð fyrir að framboð geti eftir atvikum þurft að tryggja sér starfsfólk, standa straum af auglýsingakostnaði og öðru tilheyrandi.

Það er einnig óhjákvæmilegt annað en að minnast á það að við framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna komu reglugerðir afar seint fram, raunar svo seint að framkvæmdaraðilar voru margir í afar erfiðri stöðu við að kynna sér þær eins vel og þörf var á til að geta framkvæmt kosningarnar fumlaust. Það hlýtur að vera ljóst að til þess að hægt sé að framkvæma kosningar svo sómi sé að þurfa öll lög og reglugerðir að vera tilbúnar tímanlega þannig að þau sem koma að því að framkvæma þær geti kynnt sér efni þeirra tímanlega.

Að lokum vil ég benda á að eftirlit umboðsmanna er afar mikilvægt en til að það geti náð árangri þurfa umboðsmenn alvöruúrræði en þau úrræði er hvorki að finna í núgildandi lögum né í þessu frumvarpi. Eftirlit umboðsmanna er tímafrekt og reynir á. Í ljósi fyrri reynslu velti ég því fyrir mér hvort það sé líklegt til annars en að vera í slíkri mýflugumynd að einungis standi til boða að samþykkja framkvæmdina því ómögulegt er að fá viðbrögð frá löggæslu- eða ákæruvaldi, en miðað við eigin reynslu hefur það afar lítið að segja að leita til þeirra embætta. Ég velti því hreinlega fyrir mér, í ljósi þess hversu takmarkaðir möguleikar umboðsmanns eru, hvort það sé ekki bara betra að sleppa því, hvort það sé verjandi að ætlast til þess að fólk í sjálfboðavinnu leggi á sig ómælda vinnu við þessa framkvæmd ef það er engin ætlun um að taka mark á því sem gæti komið fram.

Það er jákvætt að sjá það hér að vilji löggjafans stendur til að uppfæra kosningalög. Það þarf hins vegar að ganga mun rösklegar til verks til að við getum náð árangri og ekki er vanþörf á þar sem stór hluti fólks hefur lýst því yfir að eftir að hafa séð framkvæmdina í Norðvesturkjördæmi muni það ekki kjósa framar. Það einfaldlega treystir okkur ekki. Um það á verkefnið að snúast. Verkefnið á að snúast um traust á kosningum og því náum við aldrei við núverandi aðstæður. Framkvæmd kosninga á að eiga sér skýra stoð í lögum og/eða reglugerðum. Allt sem í þeim segir skal gert eins og það er sett fram. Ekkert annað.