raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu í þessu máli. Sagan á bak við þetta frumvarp er eflaust sú að við þurftum að skammta raforku, ef ég man rétt, í fyrra. Það á að sjálfsögðu alltaf að vera þannig að íbúar og minni fyrirtæki geti haldið áfram að njóta raforkunnar þegar lítið er til af henni. Mig langaði í fyrra andsvari að spyrja hæstv. ráðherra um það að við stærri aðilanna, sem eru jú að nota meiri hlutann af raforkunni í landinu, er oft bundið í samninga þeirra að það séu ekki skerðingar eða, ef það eru skerðingar, að það sé mjög dýrt í rauninni fyrir dreifiveiturnar að skera niður. Getur þetta frumvarp tekið á því sem þegar er búið að gera samning um eða mun þetta frumvarp einungis heimila forgang til íbúa og smærri fyrirtækja þegar slíkir samningar verða endurnýjaðir, eftir að þessi lög eru orðin gild?