153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:07]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að það sé ákveðinn misskilningur í gangi varðandi þetta því að hluti samninga hjá stórnotendunum er skerðanlegur. Það er auðvitað skilgreint í þessu frumvarpi hverjir eiga að njóta forgangs. Ég held að það sé rétt að nefna að forsagan er í rauninni sú — ég held að það hafi verið árið 2003 sem það var tekið út úr lögunum að Landsvirkjun væri fyrirtæki sem átti að vera aðili til þrautavara, en einhvern veginn farist fyrir að gera breytingar í samræmi við það. En svo það sé líka tekið fram þá er skömmtun alltaf þrautavaraúrræði og kemur ekki til beitingar nema öll önnur úrræði hafi verið reynd. Auðvitað vonumst við til þess, því að þetta er bara einn þáttur af mörgum þegar kemur að raforkukerfinu, að það þurfi ekki að koma til skömmtunar og þá er annars vegar að tryggja að hér sé framboð en sömuleiðis eru líka ýmsar leiðir þegar kemur að varaafli og öðru slíku.