153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:09]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langaði í seinna andsvari mínu að vekja athygli hans á fyrirspurn sem var lögð fram fyrr í dag til ráðherrans um raforkuöryggi á höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið í Kjósarhreppi sem tilheyrir höfuðborgarsvæðinu í öllum öðrum skilningi en þeim sem kemur að því hvað kostar að vera með rafmagn þar og hversu mikið raforkuöryggi er þar. Er það von mín að ráðherra fái svör við einhverjum af þessum fáu spurningum sem eru í fyrirspurninni en þær ganga einmitt út á það hvenær við getum vænst þess að íbúar Kjósarhrepps njóti sama raforkuöryggis (Forseti hringir.) og sama raforkukostnaðar og aðrir íbúar höfuðborgarsvæðisins sem þeir tilheyra.