raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið aftur. Hv. þingmaður er svo almennilegur að skilja bara fyrirspurnina eftir í ræðustólnum þannig að mér er alveg í lófa lagið að svara þessu strax, en hyggst samt sem áður líta betur á þetta áður en það kemur til skriflegs svars. Það er pottur brotinn víða og eitt er það, sem ég held að hv. þingmaður sé að vísa til, að reglurnar eru auðvitað umdeilanlegar þegar kemur að því hvernig skilin eru á milli svæða og þar af leiðandi verðflokka og það er það sem hv. þingmaður er að spyrja um varðandi Kjósina. En það er ekki eina svæðið. Við höfum litið á það hvað væri hægt að gera þar til að betrumbæta. Síðan er líka annað. Nú er markmið okkar alltaf að tryggja raforkuöryggi allra landsmanna og líka að allir landsmenn séu með græna, endurnýjanlega íslenska orku en það fer ekki mikið fyrir því í fjölmiðlum að t.d. á Vestfjörðum er stór dísilrafstöð, 10 MW, sem því miður þarf oft að nota til að framleiða rafmagn, í það minnsta allt of oft, vegna þess að þar vantar græna orku. Við þekkjum það á öðrum svæðum á landinu að þar er pottur brotinn þannig að það er svo sannarlega verk að vinna þegar kemur að orkumálum okkar Íslendinga.