153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:12]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil í fyrstu lýsa því yfir að ég styð efnislega frumvarpið að því leyti að setja í forgang íbúa og minni fyrirtæki og halda grunnstoðum samfélagsins gangandi ef upp kemur skortur. En það leiðir hugann að þessum orkumarkaði sem er nú svolítið hjákátlegur að því leyti til að þetta er framleitt og er 90% í eigu hins opinbera og svo er megnið eða um 80% í föstum samningum þannig að þessi svokallaða „markaðsvæðing“ á opinberri starfsemi er æði undarleg. Ég sé kannski ekki alveg að þetta sé leiðin til að bregðast við skorti og ég tek undir með hæstv. ráðherra að það sé miklu nær að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum einfaldlega með því að virkja með Hvalárvirkjun. En þetta leiðir hugann að öðru sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um, þeim fréttum sem hafa borist um að einn helsti áhrifamaður Sjálfstæðisflokksins síðustu ára hefur verið trúnaðarmaður fyrirtækja sem hafa birt miklar áætlanir, á þriðja hundrað blaðsíður, um uppbyggingu sæstrengs. Telur ráðherra að þetta frumvarp geti að einhverju leyti orðið vörn fyrir heimilin og tryggt ákveðinn forgang? Og það væri líka áhugavert, af því að ég veit að hæstv. ráðherra fylgist gaumgæfilega með þessum markaði og þessum hræringum, að heyra hvort hann hafi einhverjar fregnir af þessu máli sem hefur verið hér á síðum dagblaðanna.