153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:14]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að viðurkenna að ég veit ekki alveg til hvers hv. þingmaður er að vísa til. Hann vísaði til frétta á síðum dagblaðanna, það eru nú ekki mörg dagblöð eftir en ég hef augljóslega ekki lesið þau fáu sem eftir eru, því miður, nægilega vel, þannig að ég veit ekki til hvers hv. þingmaður er að vísa, að öðru leyti en því að það stendur ekki til að leggja neinn sæstreng. Alþingi þarf að ákveða það og væntanlega myndi það gerast þannig að annaðhvort myndi einhver hv. þingmaður gera það eða sá sem hér stendur. Ég er ekki að fara að leggja fram neitt frumvarp um að leggja sæstreng. Ég veit hins vegar ekki alveg hvað hv. þingmaður er að vísa til þarna. Varðandi þessa svokölluðu markaðsvæðingu þá er þetta náttúrlega alltaf spurningin um hvaða fyrirkomulag er best. Ástæðan fyrir því að menn fara þessa leið er að menn eru að reyna að skoða nýtingu í kerfinu eins vel og mögulegt er, því jafnvel þótt framboðið verði aldrei nægjanlegt og við verðum að sætta okkur við það, þá erum við samt sem áður í þeirri stöðu að það fellur líka orka niður sem við hefðum annars getað nýtt. Þá er spurning hvaða fyrirkomulag er best til þess að nýtingin verði sem best þannig að sóunin á þessum verðmætum verði sem allra minnst. En ég, virðulegi forseti, verð að biðja hv. þingmann velvirðingar. Ég veit ekkert hvað hv. þingmaður er að tala um.