153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:18]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara aðeins út af fyrirkomulaginu sem við erum með, við erum með þetta samevrópska regluverk en munurinn á okkur og þeim sem eru á Evrópska efnahagssvæðinu er að þeir eru tengdir saman. Meðan við erum ekki með sæstreng til EES-landanna þá erum við með einangrað kerfi og það er gríðarlega stór munur þar á. Ef menn vilja leggja sæstreng þá þarf það að fara í gegnum Alþingi Íslendinga. Það er ekkert hægt að gera það annars staðar, í gegnum einhverja aðra, það er ekki gert bak við luktar dyr og ég held að það sé afskaplega mikilvægt. Landsvirkjun hefur tilkynnt að þeir séu ekki að huga neitt að slíku. En hins vegar liggur það alveg fyrir og er vel þekkt að það eru erlendir aðilar sem hafa áhuga á því að fara að virkja á hafinu og leggja sæstreng. En það stendur ekki til. Og ég verð bara að viðurkenna það — það kemur að vísu í ljós þegar hv. þingmaður fer yfir málið að hér var ekki um dagblað að ræða heldur vefmiðil, ekki að það skipti öllu máli. Og ég get alveg lofað því að ef ég skipti um skoðun í þessum sæstrengsmálum þá verður það ekkert leyndarmál, en það hefur ekki gerst. Okkur veitir ekkert af allri þeirri orku sem við getum fengið. En hins vegar liggur það alveg fyrir að það er áhugi hjá erlendum aðilum að fara í vindorkugarða í hafi og leggja sæstreng til annarra landa.