153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:20]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna og kynningu á stöðu þessa máls. Mig langar að nota hér tækifærið til að spyrja ráðherra út í alltént tvö atriði og vil þá, með leyfi forseta, grípa hér niður í greinargerðinni. Þetta frumvarp fjallar fyrst og síðast um það, eins og fram hefur komið, að ef upp kemur sú staða að hér þurfi að skammta raforku þá sé forgangsraðað neytendum á hinum endanum og ég held að þetta sé allt til bóta. En í greinargerðinni er vísað til þess að þetta byggi á tillögum skýrslu starfshóps og segir, með leyfi forseta:

„Aðrar tillögur starfshópsins en þær sem varða ákvæði þessa frumvarps fela í sér inngripsheimildir Orkustofnunar í raforkumarkaðinn og við hvaða aðstæður slíkt væri heimilt. Gert er ráð fyrir að útfærsla á þeim tillögum verði unnin í framhaldi af framlagningu þessa frumvarps á Alþingi.“

Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvenær við hér megum eiga von á því að sjá þessar frekari tillögur að lagabreytingum og hvort þær komi í skömmtum eða komi jafnvel allar í einu, það sem út af stendur úr þessum tillögum starfshópsins.