153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:21]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Því er fyrst til að dreifa, rétt að halda því til haga, að þessi mál eru ekki einföld. Eins og komið hefur fram og hefur verið gagnrýnt erum við partur af þessu evrópska regluverki og það er ekki alveg sama hvernig við athöfnum okkur þar inni. En jafnvel þó að það væri ekki þá eru þessi mál aldrei einföld. Ég held, allra hluta vegna, að það borgi sig frekar að fara vel yfir málið því að það er vont að vera gerð afturreka með þessa hluti. Þessi vinna hefur verið áfangaskipt og mun verða unnin í sumar því að mörg eru álitaefnin þó að skýrslan liggi fyrir. Þess vegna höfum við lagt áherslu á það og ég hef lagt áherslu á það að vanda til verka og best væri að hafa þetta í þokkalegri sátt því að það er ekki alltaf friður í himnaríki þegar orkumarkaðurinn er annars vegar og ýmis sjónarmið þar, án þess að ég ætli að fara út í það í neinum smáatriðum. En ég held hins vegar að sagan sýni okkur að það er betra að taka meiri tíma í vinnuna og vanda til verka og kalla eftir sjónarmiðum frá öllum hagaðilum sem eru ekki fáir, bæði stórir og smáir. Þessi vinna er unnin með þeim hætti og það er ekki komin nein tímasetning, (Forseti hringir.) hvorki á það hvort þetta komi í smáum skömmtum eða einum stórum, en hins vegar liggur alveg fyrir að vinnan er í gangi og mun halda áfram.