153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:26]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér örstutt upp til að fagna framlagningu þessa frumvarps. Hér er loks verið að svara t.d. ábendingum þeirrar sem hér stendur og efni þessa frumvarps er í einhverju samræmi við tillögur sem ég hef lagt tvisvar sinnum fram á hinu háa Alþingi. Þetta er algerlega nauðsynleg aðgerð en það er líka mjög nauðsynlegt að við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd skoðuðum þetta mál vel og hvernig það er formúlerað, ef þannig má að orði komast. Gengur frumvarpið nógu langt, nær það utan um það sem það þarf að ná utan um? Svona í fljótu bragði þá sýnist mér að það ætti að gera það, ég ætla samt að áskilja mér rétt til að skipta um skoðun ef skoðun leiðir annað í ljós. En það er algerlega nauðsynlegt að við tryggjum þennan forgang heimilanna og smærri fyrirtækja eins og hér kemur fram, ef svo óheppilega vill til að skammta þurfi rafmagn og auðvitað tek ég undir með hæstv. ráðherra, við vonum að svo verði ekki og það reyni ekki á það. En ef svo færi þá verður það auðvitað að vera þannig að svokölluð alþjónusta eða í rauninni skylda ríkisvaldsins við almenna borgara í landinu komi fremst. Það er auðvitað rétt sem hér hefur verið bent á að af einhverjum ástæðum þá féll það út við stóru breytingarnar sem hér voru gerðar fyrir einhverjum 20 árum síðan að sjá til þess að þessi þáttur væri inni í nýju löggjöfinni af því að áður hafði Landsvirkjun haft þetta hlutverk eins og margir vita. En ég kem hér aðeins upp til að lýsa ánægju minni með það að þetta frumvarp sé fram komið og við munum væntanlega fara vandlega yfir það í umhverfis- og samgöngunefnd.