153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:29]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Við erum hér að ræða mikilvægt mál. Það snýst fyrst og fremst um það hvernig eigi að bregðast við ef upp kemur skortur og upp kemur eitthvert neyðarástand hvað varðar orkuna. Auðvitað verðum við að horfa til þess að við erum að tala um grunnþátt í nútímasamfélagi, sem er raforkan. Eins og hæstv. ráðherra hefur lagt áherslu á er raforkan og innlend orka hluti af því að við getum eitthvað alla vega móast í átt að þessum loftslagsmarkmiðum, þó svo að ég haldi að það sé augljóst að það sé meira skrauttal að ætla að gera það heldur en raunveruleikinn. Engu að síður held ég að meginógnin við orkuöryggi á Íslandi sé þessi markaðsvæðing eins og hefur verið úti í Evrópu. Það var kannski leið til að bregðast við þegar væri skortur á rafmagni, að geta hækkað orkuverð þannig að hún nýttist og menn færu sparlega með hana. Hvers vegna segi ég það? Jú, mér finnst að þessi orkumarkaður sé svona pínulítill brandari vegna þess að þar eru framleiðendur sem eru, 90% þeirra, opinberir aðilar sem eru í „samkeppni“ sín á milli, síðan er megnið af orkunni selt í föstum samningum og nú er verið að búa til einhvern heildsölumarkað sem, ef ég man rétt, er bara dótturfélag eins félagsins sem er í opinberri eigu. Þarna eru komnir ríkisstarfsmenn í raun og veru eða opinberir starfsmenn sem eru í einhverjum samkeppnisleik.

Hver er áhættan núna? Það sem er orðin áhætta, m.a. umhverfisleg myndi ég segja, og þá á ég við að menn fari að stilla upp vindmyllum, er að það eru komnir hér lukkuriddarar í röðum við að koma upp vindmyllum hér og þar og eru að hugleiða alls konar garða og eru farnir að þrýsta á breytingar. Og nú vil ég vitna til þess sem ég nefndi hér fyrr í andsvörum við hæstv. ráðherra: Það eru komnir hér riddarar sem eru orðnir jafnvel pólitískir ráðgjafar og þetta eru engir litlir karlar heldur eru þetta áhrifamenn í íslenskum stjórnmálum sem hafa jafnvel átt fast sæti í Silfrinu, þátt eftir þátt, og eru hér í innsta hring eins valdamesta flokks landsins. Þeir eru greinilega komnir í þjónustu hjá fyrirtækjum sem hugsa sér gott til glóðarinnar, nýta sér þá möguleika sem orkupakkarnir leyfa, þ.e. að geta tengst hér inn með sæstreng og farið inn í þetta og nýtt sér þetta samkeppnisumhverfi sem er búið að búa til. Auðvitað veit ég það að hæstv. ráðherra hefur talað um að það standi ekki til að tengja landið við Evrópu með sæstreng. En það eru samt sem áður einir helstu trúnaðarmenn flokksins, hans eigin flokks, sem eru í þjónustu fyrirtækja sem eru að vinna að því og telja jafnvel að það sé hægt að hefjast handa innan árs að einhverju leyti, ef ég skildi þessa skýrslu sem er upp á 230 blaðsíður rétt. Þetta er áhyggjuefni.

Ég tel að ef menn ætla að bregðast við óöryggi eða því sem er á Vestfjörðum, orkuskorti, og vilja hætta að brenna þar olíu til að búa til rafmagn eða varaafl, þá eigi menn auðvitað að greiða fyrir því að fara í virkjanir á svæðinu og efla flutningskerfið þannig að orkan dreifist hratt og vel um landið.

Ég tel að þessir orkupakkar eitt, tvö og þrjú og allt þetta dæmi, kosti þjóðfélagið ógurlega mikið, það er mikill umbúnaður. Það er rétt að huga að því hvort það sé ekki hægt bara að gíra sig út úr þessu, sérstaklega þegar það hefur komið fram að enginn ætlar að tengja landið, alla vega í orði, við raforkukerfi Evrópu. Þá er svolítið tilgangslaust að opinber fyrirtæki séu í þessum samkeppnisleik og að vera að koma hér upp eftirlitskerfi, eins og næsta frumvarp á dagskránni boðar, að evrópskri fyrirmynd til að hafa eftirlit með opinberum fyrirtækjum. Ég held að það sé kominn tími til að staldra örlítið við á þessari vegferð sem við erum á.

Ég styð auðvitað efni þessa frumvarps sem hér um ræðir, þ.e. að heimilin, minni fyrirtæki og samfélagslegur rekstur sé sett í forgang, þó það nú væri. Auðvitað eigum við að hafa þessa starfsemi og heimilin í forgangi þannig að ég styð efni þessa frumvarps. En þessar umbúðir allar fyrir starfsemi hins opinbera á samkeppnismarkaði — þetta er nú hálfhjákátlegt.