raforkulög.
Frú forseti. Ég er viss um að orkupakkarnir greiða því leið að það sé lagður sæstrengur. Þegar maður verður vitni að því að einn helsti trúnaðarmaður fjármálaráðherra er kominn bara í vinnu við að leggja sæstreng — hæstv. ráðherra talar um að það sé alger fjarstæða, bara fjarstæðukennt vegna þess að það komi þessu máli ekkert við. Auðvitað er verið að setja þessar leikreglur allar til þess að menn eigi þann möguleika að tengjast og þeir sem vilja kaupa geti þá keypt af netinu. Þess vegna eru menn að búa til þessa orkupakka. Auðvitað þyrfti að koma að einhverju leyti til samþykkis Alþingis. En annað eins hefur nú gerst, frú forseti, að menn hafi skipt um stefnu og eitthvað er það sem trúnaðarmenn, Sjálfstæðismenn, sjá í þessu og sjá þennan möguleika, að þetta sé nú jafnvel handan við hornið ef marka má þessa ágætu skýrslu, 230 blaðsíðna skýrslu. Ég hvet hæstv. ráðherra til að kynna sér þetta og þetta verði rætt innan flokksins því að þetta er auðvitað eitt af því sem skiptir máli fyrir landsmenn, hefur mögulega áhrif á raforkuverð hjá almenningi. Þetta er mál sem ég held að menn þurfi að ræða af hreinskilni og fara yfir. Og þó svo að við séum kannski sammála í þessu efni, ég og hæstv. ráðherra, við myndum ekki greiða atkvæði með því að það yrði lagður hér sæstrengur, þá eru greinilega öfl víða, jafnvel í ranni hans, sem vilja fara þessa leið.