raforkulög.
Virðulegi forseti. Það eru ákveðnir hlutir sem ganga ekki alveg upp í þessum málflutningi. Í fyrsta lagi þekkjum við það alveg að það hefur verið umræða um sæstreng, og það eru erlendir aðilar núna — Landsvirkjun hefur ekki talað um að leggja sæstreng og við vitum að við þurfum alltaf að samþykkja lög til þess — sem vilja nýta vindinn í hafi og hafa viljað leggja sæstreng. Hvert? Til Bretlands. Er Bretland partur af Evrópska efnahagssvæðinu? Er Bretland partur af Evrópusambandinu? Gilda þessar reglur, sem hv. þingmaður segir að byggi undir þá ákvörðun að leggja sæstrenginn, í Bretlandi? Öllum þessum spurningum er svarað með nei. Þrátt fyrir að Bretland sé farið úr Evrópusambandinu þá eru aðilar sem hafa áhuga á því að leggja sæstreng. Hefur ekkert með reglurnar að gera. Þeir hafa bara samt áhuga á því. Það liggur alveg fyrir, virðulegi forseti, að það skiptir engu máli hvaða reglur gilda. Við komum aldrei í veg fyrir það að einhverjir hafi áhuga á því að leggja sæstreng milli Íslands og annarra landa. Það hefur bara ekkert með reglurnar að gera, ekki nokkurn skapaðan hlut. En sem betur fer eru lög á Íslandi sem eru þannig að Alþingi Íslendinga þarf að samþykkja það ef einhver vill leggja sæstreng. Það stoppaði ekkert umræðuna, (Forseti hringir.) því hún var alltaf um sæstreng til Bretlands, það stoppaði bara ekkert umræðuna — þó að hún hafi legið í dvala og mér heyrist á hv. þingmanni að hún sé aftur komin upp á yfirborðið — (Forseti hringir.) að Bretland færi úr Evrópusambandinu og væri þar af leiðandi ekki partur af þessum reglum.