153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:42]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var áhugavert. Það virðist vera að hæstv. ráðherra viti eitthvað meira um þetta mál en hann gaf til kynna í fyrstu andsvörum sínum. En látum það nú vera. Ég held að það sé ágætt að viðurkenna að þetta mál er í gangi og er í gangi í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins þar sem menn eru að vinna að þessu og það er ekkert leynt, þetta er orðið ljóst, þetta er komið á síður vefmiðlana, 230 blaðsíðna skýrsla þar sem borgarfulltrúi og hv. varaþingmaður eru bara orðnir trúnaðarmenn og ráðgjafar, pólitískir trúnaðarmenn og ráðgjafar, í þessari áætlun um sæstreng. Ég býðst auðvitað til þess að leggja hæstv. ráðherra lið í því að leggja alla vega einhvern stein í götu þessa máls þannig að íslenskir neytendur megi ekki búast við miklum hækkunum. Það er alveg hætt við því að eftirspurnin á Bretlandseyjum, sem eru tengdar Evrópusambandinu með strengjum, geti mögulega leitt til hækkaðs orkuverðs. Við getum örugglega verið samherjar í því þegar til kastanna kemur, því að þetta er náttúrlega orðið opinbert mál og menn eru farnir að ræða þetta og leggja á ráðin og ef það er að marka eitthvað þessa skýrslu sem þessi ágæti vefmiðill birti þá er þetta ekkert að gerast einhvern tímann langt fram í framtíðinni. Menn eru að tala um bara á næstu árum.