153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Mér finnst þetta áhugaverð orðræða hjá hv. þingmanni og áhugavert og gleðilegt að hann tekur undir markmið frumvarpsins um þessa forgangsröðun orkunnar til heimila og einnig er hægt að forgangsraða smærri fyrirtækjum. En það er einmitt einn kjarninn í þriðja orkupakkanum. Það er það sem þriðji orkupakkinn snerist um hvað varðaði neytendaverndina, sem er dálítið merkilegt. Við skulum hafa það í huga hvað orkupakkinn var þarna að færa okkur í regluverki sem hefur með að gera réttindi til handa heimilum í landinu. Þegar það er þörf á orku hjá heimilum þá ráða stjórnvöld því. Það er skilyrði um heimilin en smærri fyrirtækin eru valmöguleiki. Það er það sem stjórnvöld geta gert, þau geta sagt: Okkur er alveg sama hvernig ástandið er hjá ykkur stóriðjuaðilunum, heimilin og litlu aðilana vantar rafmagn og það fer þangað. Gaman að vaða aðeins í gegnum orðræðuna um orkupakkana, sérstaklega þriðja orkupakkann. Svo er líka gaman að pæla í orðræðunni í kringum sæstrenginn því að allt sem að honum kom laut að því að það væru gríðarlegar niðurgreiðslur á uppbyggingu hans, því að annars borgar hann sig aldrei, ekki séns að hann borgi sig. Bretland er nýbúið að setja upp vindorkugarð sem kostar það sama og að leggja sæstreng nema sá vindorkugarður framleiðir rafmagn. Ekki nóg með að þeir séu komnir með sæstreng út í vindorkugarðinn, þeir eru komnir með framleiðslu á rafmagni. Sæstrengurinn framleiðir ekkert rafmagn hins vegar, hann bara flytur það. (Forseti hringir.) Þannig að það er alltaf góð hugmynd að byggja frekar upp vindorkugarð úti á hafi eins og þeir gerðu heldur en að leggja sæstreng.