153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:49]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þeir skiptast í raforkuverðið, flutningskostnaðinn og niðurgreiðslu á flutningskostnaði, ekkert gríðarlega flókið svo sem þegar allt kemur til alls. Það er dálítið merkilegt að pæla í því að orkupakkarnir, sérstaklega þriðji orkupakkinn, voru einmitt útpældir til þess að rífa í sundur einokun rússneskra ríkisfyrirtækja í Evrópu, rífa í sundur þeirra einokun á ákveðnum mörkuðum. Alltaf mjög áhugavert að pæla í stærra samhenginu. Ég hef alla vega dálítinn áhuga á því að skoða markaðskerfið í kringum orkupakkana og það er áhugavert að skoða það því að það er alltaf verið að segja að ef það verði lagður sæstrengur til Íslands þá muni verðið hækka, allt raforkuverð á Íslandi, með tilliti til þess sem verðið er í því landi sem Ísland tengist. Það er bara rangt. Uppboðskerfið virkar ekki þannig. Það er ekki uppboðskerfi þar sem sá sem býður hæst, fær. Það virkar ekki þannig. Ef hv. þingmaður hefur einhverja hugmynd um það hvernig þetta virkar þá þætti mér áhugavert að heyra það. Ég veit alveg hvernig uppboðskerfi virkar en ef hann vill lýsa því af hverju það gerist ekki og að raforkuverð á Íslandi myndi hækka ef við myndum tengjast sæstreng með tilliti til þess hvar við tengjumst, þá hefði ég mjög mikinn áhuga á að heyra það því að það skiptir lykilmáli í umræðunni um raforkumál að skilja hvernig það virkar.