153. löggjafarþing — 98. fundur,  25. apr. 2023.

raforkulög.

943. mál
[21:51]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Mér heyrist nú að talsmanni þessara fyrirtækja sem hyggjast tengjast íslenskum orkumarkaði með sæstreng hafi bæst liðsmaður hér á hinu háa þingi. (Gripið fram í: Vertu ekki með hártoganir.) En það má vera að svo sé ekki. En ef menn vilja skoða reynsluna af þessu þá eigum við ágæta nágranna, Norðmenn, þar sem orka drýpur nánast úr hverjum fossi og olía upp úr jörðu og ég veit ekki hvað. Ef hinn venjulegi norski neytandi væri spurður hvort hann væri ánægður með þessa tengingu við Evrópu og það allt þá þarf ekkert að velkjast í vafa um hvert svarið væri. Þó svo að hv. þingmaður telji að þetta verði einhver tóm hamingja — fyrir íslenska neytendur þá held ég að sé rétt að staldra við reynslu nágrannaþjóða okkar sem tímdu nú varla að fara í sturtu á tímabili í upphafi Úkraínustríðsins vegna þess að orkuverð fór upp úr öllu valdi. Þetta er ekki tóm hamingja. Þó svo að við getum að einhverju leyti skoðað Norðmenn og reynslu þeirra, sem er náttúrlega ekki góð, þá erum við auðvitað miklum mun færri og erum hér einangruð úti í ballarhafi og mér finnst bara að við eigum ekkert að vera að taka einhverjar reglur fyrir milljóna og hundruð milljóna samfélög upp hér á okkar litla landi þar sem megnið af orkunni er í föstum samningum.